Krakkar úr leikskólanum Kjarrið, Garðabæ.

* Sjáðu, hvað þetta hjól er lítíð á mig.

* Mér er svo illt í maganum að ég verð að nota trefil.

* Mig langar til mömmu. Hún keyrði útfyrir framhjá áðan.

* Það er líka til jólasveinn sem heitir Rassskellir.

* Fyrst ætla ég að vera Battman, svo Superman og svo fer ég í nudd.

* Mér er svo illt í röddinni að ég get ekki farið út.

* Öxar við ána, skjótum upp kjána.

* Kiddi sagði=Hann Víglundur er svo þreyttur að hann missti hjartað.
Þá sagði vinur hans= Og ég missti beinin.

* Þegar englarnir koma of seint til að sækja mann, þá verður maður draugur.

* Ef maður lemur engil í hausinn þá breytist hann í ryk.

* Fóstran spurði Kalla: “Hvaða staf á afi þinn?” Kalli svaraði: “Hann
á bara kross af því að hann var orðinn svo gamall.

* Mamma spurði strákinn sinn: ”Hvað fékkstu að borða í leikskólanum?“
- Ég fékk kanínusykur.”
[Hann átti við kanilsykur]

* “Ugla sat á Kristi”.

* Ég stækka svo mikið að fötin eru farin að minnka á mig.

* Siggi og hinir krakkarnir í leikskólanum voru að fara út að leika sér.
Þá segir Siggi spekingslega: “Maður getur alveg verið á eyrunum. Það
er svo gott veður úti.”


Úr bókinni: “Gullkorn úr hugarheimi íslenskra barna.”


afsakið en ég sendi þetta inn á korkar en ætlaði að setja þetta hingað