Húsbóndi nokkur kemur heim frá lækninum og tjáir eiginkonu sinni að læknir hans hafi sagt að hann ætti aðeins 24 stundir eftir ólifað. Eftir þessa frásögn spyr hann konu sína hvort hún væri til í kynlíf. Að sjálfsögðu samþykkir hún bón hans og þau gera það saman..
6 klukkustundum síðar fer hann til eiginkonu sinnar og segir: “Elskan, þú veist að ég á aðeins 18 stundir eftir ólifað. Getum við vinsamlegast gert það einu sinni enn?” Auðvitað segir kona hans og þau gera það aftur. Aðeins seinna, eða um leið og maðurinn fer í rúmið lýtur hann á úrið sitt og sér að hann á aðeins 8 stundir eftir. Hann snertir öxl konu sinnar og spyr: “Elskan, ggggeeeeeerrrrrrððððððuuuuu það með mér einu sinni áður en ég dey.” Hún tekur bóninni að sjálfsögðu og þau elskast í þriðja sinn.
Eftir útreiðina snýr konan sér við og sofnar. Maðurinn hins vegar, áhyggjufullur vegna væntanlegs dauða sín, byltir sér og veltir þangað til að hann á aðeins 4 stundir eftir. Hann bankar í konu sína sem vaknar.
“Elskan”, segir maðurinn, “Ég á aðeins 4 stundir eftir, heldurðu að við gætum…” Í þetta skipti sest kona upp og segir, “Heyrðu, ég þarf að vakna á morgun, ekki þú!”.

Týpísk kona.