Úr íslenskum læknaskýrslum... Kannski hefur þetta komið áður, kannski ekki… Bara ekki koma með skítköst ef þetta hefur komið áður, ég les ekki nákvæmlega allt sem kemur hingað inn ..
Þetta er samt eitt það fyndnasta sem ég ég hef heyrt! :)

Úr íslenskum læknaskýrslum…

- Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn…

- Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið…

- Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum…

- Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall…

- Eftir það var hún í samkvæmi…

- Fékk vægan verk undir morgunsárið…

- Hún hefur þroskast eðlilega framan til…

- Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember…

- Húðin var rök og þurr…

- Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr…

- Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring…

- Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf…

- Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum…

- Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur…

- Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur…

- Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt…

- Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði…

- Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur…

- Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill…

- Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð…

- Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni…

- Það sem fyllti mælinn var þvagleki…

- Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa…

- Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur…

- Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt…

- Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann…

- Sjúklingur borðar reglulegt mataræði…

- Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð…

- Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert…

- Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar…

- Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr…

- Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu…

- Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef…

- Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár…

- Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað - en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri…

- Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða…

- Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki…

- Sjúklingur hefur formlegar hægðir…

- Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala…

- Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring…

- Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár…

- Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983…

- Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði…

- Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl. …

- Sjúklingur lærði söngnám…

- Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli…

- Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn…

- Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði…