Dag einn vakti mamma son sinn. „Vaknaðu, það er kominn tími til að fara í skólann.“ „En mamma, ég nenni ekki.” Mamma svarar: „Nefndu mér tvær ástæður sem réttlæta að þú farir ekki.“ Það stóð ekki á svarinu: „Börnin hata mig og kennararnir líka.”


Mamma svarar: „Þetta er engin afsökun, komdu þér strax á fætur.“ Sonurinn svarar: „Nefndu mér tvær ástæður sem réttlæta það að ég mæti í skólann.” „Sonur minn, í fyrsta lagi ertu 52 ára og svo ert þú skólastjórinn."
Ef þú ert staddur í holu. Hættu þá að grafa!!