Jói fór í leikhúsið með frúnni og strax í fyrsta atriði finnur hann að nauðsynlegt er að pissa fljótt svo ekki eigi að skapast neyðarástand. Hann fór fram og leitaði um húsið að salerni, en fann ekkert. Hann endaði í stóru herbergi með sterkum ljósum. Hann sá engan til að spyrja og af því að hann var að springa þá snéri hann sér að blómapott sem stóð þar á miðju gólfi og sprændi í pottinn.


Þegar hann kemur til baka, snýr hann sér að frúnni og hvíslar: “Missti ég af einhverju?” Konan hvíslaði til baka: “Misstir af hverju? Þú ættir að vita hverju þú misstir af. Að þú skulir voga þér að pissa á sviðinu fyrir framan alla!”
Ef þú ert staddur í holu. Hættu þá að grafa!!