að eiga svona ‘síðustu orð’ er þess virði að deyja. hefur komið inn áður en það er langt síðan.

Ég slæ örugglega heimsmet ef mér tekst þetta.

Ég skal teygja mig og reyna að ná úrinu þínu undan færibandinu.

Nei vá, rosalega ertu með ýkt krúsílegt tattú.

Þetta þolir eld.

Nei nei, hann er örugglega í dvala.

Hvað gerir þessi takki?

Ég er að gera framkvæma borgaralega handtöku!

Þú ert mannæta segirðu …

Þetta er örugglega bara eitthvað útbrot.

Ertu viss um að þú hafir tekið rafmagnið af?

Já, það var ég sem átti úrslita atkvæðið í kviðdómnum, hvað með það?

Nei, það er ekki laus reim á skónum mínum.

Það er örugglega einn á móti milljón að það gerist.

Hvað segirðu, beygja mig hvað?

Hvað áttu við með, “I'll be back”?

Tosa í pinnann, og telja uppá hvað sagðirðu?

Hvaða vír átti ég aftur að klippa?

Hvar ætli mömmu-björninn sé?

Engar áhyggjur, ég sá þetta gert í sjónvarpinu.

Mmmm, þetta eru ekkert smá góðir sveppir.

Ok, ég skal halda, og þú kveikir á þræðinum.

Hvað er þessi prestur að gera hérna?

Settu þetta varlega frá þér.

Hve oft á ég að segja þér þetta, rottueitur drepur bara rottur.

Er ristabrauðið þitt fast ofan í … ég get reddað því.

Já ég er viss, þetta þolir okkur báða.

Góður hundur …

Blessaður, ég get gert þetta með bundið fyrir augun.

Jæja, við erum allaveganna komin þetta langt.

Þetta var eitthvað skrítið …

Hei, þetta er ekki fiðla!

Ok, en þetta er í síðasta skipti sem ég geri þetta.

Ekki vera svona hjátrúarfullur.

Ef þér fannst þetta flott, sjáðu þá ÞETTA!

Þessi pláneta er með mjög svipað andrúmsloft og jörðin, sjáðu bara.

Vertu ekkert að taka þetta úr sambandi, ég verð enga stund að laga þetta.

En hvað gerist ef ég læt þessa tvo víra sne………..

Engar áhyggjur, hún er ekki hlaðin.

Treystu mér, ég veit hvað ég er að gera.

Það er frábært útsýni, maður þarf bara aðeins að halla sééé……

Passaðu þig á því hvert þú beinir þessum boga, þú varst næstum því bú……

Ég skal segja þér afhverju, við stöndum á bakvið þykka stálplötu.

Auðvitað er þetta sótthreinsað.

Við ættum að komast hringinn á þessu, ég er búinn að troðfylla tankinn.

Hann er svo vel taminn, að þú getur sett höfuðið uppí munninn á honum.

Afhverju ætti ekki að mega synda í því?

Ég þekki hann, hann er mjög öruggur bílsjóri.

Engin hætta, þetta hljóð Á að heyrast

Já, þetta er svona 90% jarðtengt.

Asnalegt skilti, mér sýnist þessi brú vera í fínu lagi.

Nei málið er, að þeir gera bara árás ef þeir eru svangir.

Ég get nú haldið andanum niðrí mér allaveganna það lengi.

Hei, þarna eru hermenn, spyrjum þá.

Ég þori að veðja að ég kemst ofan í þetta.

Engar áhyggjur, ég hef gert þetta milljón sinnum áður.

Nei, við þurfum ekki að spyrja til vegar, ég er með kort.

Hey, hvað ætti svo sem að geta klikkað?

Eitrað? Er ekki í lagi með þig?

Það ætti allaveganna ekki að koma að sök að prófa.

Nei ég þarf ekki leiðbeiningarnar, þetta liggur ljóst fyrir.


Ég grenjaði úr hlátri bara af því að lagfæra þetta hérna. kannski af því að þetta er eitthvað sem vinur minn myndi segja, veit ekki.
alla vegana. njótið
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig