Nokkrir menn eru samankomnir í búningsklefa í íþróttahúsi eftir æfingu.
Allt í einu hringir farsími á einum bekknum. Einn mannanna tekur upp
símann og eftirfarandi samtal á sér stað.
- Halló?
- Elskan, þetta er ég.
- Yndið mitt!
- Ertu í íþróttahúsinu?
- Já.
- Frábært! Ég er í Kringlunni og þar sá ég frábæran minkapels.. Hann er
algjört æði. Má ég kaupa hann?
- Hvað kostar hann?
- Bara 120 þúsund.
- Jæja, OK, farðu bara og keypt´ann, fyrst þér finnst hann svona æðislegur.
- Ahh, ég kom líka við í Bílabúð Benna og sá Porche 911 Turbo 2001módelið.
Ég sá einn bíl sem féll í stafi fyrir. Ég talaði við sölumanninn og var
tilbúinn að gefa mér góðan afslátt.. og þar sem við þurfum hvort eð er að
skipta á BMW-inum sem við keyptum í fyrra..
- Hvaða verð bauð hann þér?
- Aðeins tæpar sjö milljónir…
- OK, fyrir þetta verð sláum við til.
- Frábært! Áður en við sláum botninn í samtalið, það var eitt enn.
- Hvað? Það gæti virst dálítið stór ósk, en ég hef verið fara yfir
bankainnistæðuna þína.. og kom við í morgun hjá fasteignasölunni og sá
húsið sem við skoðuðum í fyrra .Það er á tilboði!
Manstu? Húsið með sundlauginni, stóra garðinum.
- Og hvað vilja þeir fá fyrir húsið?
- Aðeins um 40 milljónir. frábært verð, og ég sé við eigum samt eftir inná
reikningnum til að dekka.
- Já, þú segir nokkur, farðu og keyptu það en gerðu tilboð upp á
37milljónir, OK?
- Allt í lagi, elskan. Takk! Sé þig á eftir!! Ég elska þig!!!
- Bless. ég líka.

Maðurinn leggur á, lokar farsímanum, lyfti upp hendinni með símanum og spyr
viðstadda:
- Veit einhver hver á þennan síma?


kv.
cul-de-sac
——————–
Ok.. það má vera að hann sé stolinn, komið áður, gamall, þú hafir heyrt hann áður, komið í dv, sjónvarpshandbókinni eða mogganum. Mér er bara alveg sama :)
——————–