Bimba vaknaði um miðja nótt og áttaði sig á því að

eiginmaðurinn var ekki í rúminu. Hún smeygði sér

í náttkjólinn og fór niður. Sat þá ekki maðurinn

við eldhúsborðið og húkti yfir ísköldum

kaffibolla. Hann virtist annars hugar og starði

tómeygður á vegginn. Bimba sá hann þurrka tár af

kinnunum og súpa á kaffinu.

- “Hvað er að ástin mín? Af hverju siturðu hér einn um miðja nótt,

spurði hún. Addi leit upp og sagði:

”Manstu þegar við vorum að hittast á laun fyrir 20 árum, aðeins 16 ára gömul.“

- ”Já, ég man vel eftir því,“

sagði Bimba.

- ”Manstu þegar pabbi þinn kom að okkur þar sem við vorum að elskast í aftursætinu í bílnum mínum?“

- ”Já, ég man líka vel eftir því.“

- ”Manstu þegar pabbi þinn dró upp byssuna, beindi henni að höfðinu á mér og sagði:

-“Annað hvort giftistu dóttur minni eða verður næstu 20 árin í fangelsi.”

- “Já, ég man vel eftir þessu elskan mín,” sagði Bimba og settist við hlið eiginmannsins. Hann þurrkaði tár af hvörmunum og

sagði:
-“Veistu… ég hefði losnað út í dag!”