Ekki eru allir alvondir þó þeim verði eitthvað á Gamall maður bjó einn í þykkvabænum. Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn en það var of mikil erfiðisvinna fyrir hann. Sonur hans, Bubbi, var sá sem hjálpaði honum venjulega, en Bubbi sat á hrauninu.Gamli maðurinn sendi honum tölvupóst og sagði honum frá vandræðum sínum.:

“Elsku Bubbi minn. Mér líður hálf ílla því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er að verða of gamall til þess að stinga upp beðin. Ef þú værir hérna ætti ég ekki í neinum vandræðum því ég veit að þú myndir stinga upp beðin fyrir mig. Áttu von á helgarleyfi bráðlega?
Kær kveðja elsku sonur Pabbi.”

Eftir örfáa daga fékk hann svar frá syni sínum:

“Elsku Pabbi
Í GUÐANNA BÆNUM EKKI STINGA UPP GARÐINN!
Ég gróf dópið og byssurnar þar!
Þinn Bubbi.”

Í birtingu morgunin eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunnar og stungu upp öll beðin, en fundu hvorki dóp né byssur. Þeir báðu gamla manninn afsökunnar og hurfu á braut. Sama daginn fékk hann annan tölvupóst frá syninum:

“Elsku Pabbi
Við núverandi aðstæður gat ég ekki gert betur.
Þinn elskandi sonur Bubbi.”