Hjón nokkur voru við það að eignast barn. Þegar þau komu á spítalann sagði læknirinn þeim að búið væri að finna upp nýja vél sem gæti fært hluta sársauka móðurinnar yfir á föðurinn. Hann spurði hjónin hvort þau væru tilbúin að prófa hana og þau tóku bæði mjög vel í það.
Læknirinn stillti sársaukaflutninginn á 10% til að byrja með og
útskýrði fyrir þeim að þessi 10% væru sennilega meiri sársauki en eiginmaðurinn hefði nokkurn tíma upplifað áður.
Hríðirnar jukust óðum en eiginmaðurinn sagði lækninum að honum liði ágætlega. Þá hækkaði læknirinn sársaukaflutninginn í 20%. Enn leið eiginmanninum ágætlega. Læknirinn athugaði blóðþrýstinginn hjá honum og var undrandi á því hve manninum virtist líða vel.
Þegar þarna var komið ákvað hann að prófa að hækka flutninginn í
50%. Og enn leið eiginmanninum ágætlega. Þar sem sársaukaflutningurinn hjálpaði eiginkonunni verulega, hvatti
eiginmaðurinn lækninn til að færa allan sársaukann yfir á hann.
Eiginkonan fæddi heilbrigt barn með nánast engum sársauka. Hjónin voru í sjöunda himni yfir barninu og þessari undursamlegu vél.
Þegar þau komu heim lá bréfberinn dauður á tröppunum.