Á salernisaðstöðu á fínum veitingastað standa
viðskiptafræðingur,
lögfræðingur og bóndi hlið við hlið og nota pissuskálarnar.

Viðskiptafræðingurinn klára, rennir upp og byrjar að þvo, eða
bókstaflega skrúbba á sér hendurnar… alveg upp að olnbogum.
Notaði síðan um það bil 20 bréf til að þurrka sér.
Hann snýr sér að hinum og segir,
“Ég gekk í Harvard. Þar kenndu þeir okkur að vera hreinlegir.”

Lögfræðingurinn kláraði og bleytti fingurgómana, greip eitt
bréf og sagði,
“Ég lærði í Princeton, þar kenndu þeir okkur að vera umhverfisvænir.”

Bóndinn renndi upp og á leiðinni út segir hann, “Ég lærði
Hvanneyri. Þar var okkur kennt að pissa ekki á puttana á okkur.”