Og svo var það ljóskan sem fékk þennan gífurlega
áhuga á dorgveiði. Hún varð sér út um allan búnað
til þess, veiðigræjur, borsveif og stól.
Nú, svo var að skella sér í veiði. Hún kom sér
fyrir úti á ísnum, settist á stólinn og fór að bora.
Þá gall við rödd sem sagði: “Hér er enginn fiskur.”
Henni varð bylt við og leit í kringum sig en sá engan.
Hún færði sig um set. Á nýjum stað kom hún sér fyrir
settist á stólinn og fór að bora. Og aftur sagði röddin:
“Hér er enginn fiskur”
Aftur tók hún saman græjurnar og færði sig um set.
Og sem hún byrjar aftur að bora gellur við röddin:
“Hér er enginn fiskur.” Hún lítur í kringum sig, upp
í loftið og allt í kring en sér engan. Hún spyr með
titrandi röddu. “Er…, er þetta Guð?”
“NEI! Þetta er umsjónamaður skautahallarinnar og
hér er engan fisk að fá!”