Ágætis afþreying :D




Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.

Léttara er að sóla sig en skó.

Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.

Ekki er aðfangadagur án jóla.

Blankur er snauður maður.

Lengi lifa gamlar hræður.

Sá hlær oft sem víða hlær.

Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.

Rangt er alltaf rangt, það er rétt.

Betra er að ver á milli svefns og vöku en stafs og hurðar,og skers og báru og steins og sleggju.

Margur hefur farið flatt á hálum ís.

Sjaldan er góður matur of oft tugginn.

Sjaldan er góður maður of oft tugginn.

Betri eru læti en ranglæti.

Oft er virtur maður ekki virtur viðlits.

Oft er grafinn maður dáinn.

Oft eru læknar með lífið í lúkunum.

Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur.

Enginn verður óbarinn boxari.

Oft er dvergurinn í lægð.

Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar.

Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni.

Illu er best ólokið.

Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt.

Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni.

Blindur er sjónlaus maður.

Bændur eru bændum verstir og neytendum líka.

Flasa er skalla næst.

Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.

Margur geispar golunni í blankalogni.

Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.

Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn.

Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu.

Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur.

Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.

Nakinn er klæðalaus maður.

Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga.

Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa.

Minkar eru bestu skinn.

Margur nautabaninn sleppur fyrir horn.

Betra er að drepa tímann en sjálfan sig.

Betra er að ná áfanga en að ná fanga.

Hungraður maður gerir sér mat úr öllu.

Betra er að vera eltur en úreltur.

Oft kemst magur maður í feitt.

Ekki var Lennon skotinn í Yoko heldur í New York.

Oft eru lík fremur líkleg.

Betra er áfengi en áfangi.

Ei var hátíð fátíð í þátíð.

Margur boxarinn á undir högg að sækja.

Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir.

Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn.

Greidd skuld, glatað fé.

Margur bílstjórinn ofkeyrir sig.

Ef þú átt vín þá áttu vin.

Oft er lag engu lagi líkt.

Oft svarar bakarinn snúðugt.

Saumakona fæst ekki til að stoppa, þegar hún er byrjuð að halda
tölu, og prjóna við sögu, og spinna lygavef og tvinna allt saman og spotta
menn og fara ofaní saumana á hlutunum sem eru nýir af nálinni og sauma að
fólki sem er á nálum og er að reyna að bæta ráð sitt og bíta úr nálinni,… æ æ þar missti ég þráðinn.



Betri er utanför en útför.

Margur fær sig fullsaddan af hungri.

Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur.

Betra er að teyga sopann en teygja lopann.

Verra er að gleypa koddaver, Húnaver, sænguver, orkuver, Magnús Ver en Sjeniver, því er ver.

Ég veit að þeir eru ekki allir góði