Ég heyrði þennan um helgina, hef ekki hugmynd hvort hann hafi komið milljón sinnum áður eða ekki, en mér finnst hann hrikalega nasty fyndinn!!

Ríkur maður og fátækur voru að spjalla saman og fóru að ræða afmælisgjafirnar sem þeir höfðu gefið konunum sínum.

Sá ríki: Tjah ég gaf nú konunni minni Mercedes Benz, minkapels og demantshring.
En þú, hvað gafst þú konunni þinni?

Sá fátæki: Hmm, ég gaf henni nú bara inniskó og veselín.

Sá ríki: Ha? Inniskó og vaselín… ?

Sá fátæki: Jáh, ef henni líkar ekki inniskórnir getur hún bara troðið þeim upp í rassgatið á sér.

Hehehehe ;)