Tveir eldri menn voru saman á ferðalagi í Amsterdam í
Hollandi. Þeir höfðu heyrt að það væri mikil upplifun að
fara í Rauða hverfið og finna sér konu!

Þeir röltu um hverfið og náðu loks að vinna sig upp í kjark
að fara í eitt húsið. Þeir komu að húsinu og bönkuðu fast á
hurðina.

Til dyra kemur eldri kona sem líklega var ‘stjórinn’ þarna
inni og spyr þá strax hvað þá vanti!

“Okkur langar í konur,” segir einn þeirra.

Þá spyr konan: “Hvað eruð þið gamlir?”

“80 ára,” svara karlarnir í kór!

Hún segir þeim að koma inn og fá sér sæti og að þeim verði
fylgt upp í herbergi til kvenna eftir augnablik, en á meðan
lætur hún eina af stúlkunum sem þarna var við ‘vinnu’ fara
upp í herbergi og blása upp gúmmídúkkur fyrir karlanna því
þeir séu það gamlir að þeir fatti ekki neitt.
Stúlkan fer upp og gerir allt klárt.

“Jæja, þessi kona hér vísar ykkur upp,” segir gamla konan
og tók á móti peningunum frá vinunum.

Eftir stutta stund kemur einn þeirra niður og sér að hinn
er líka komin niður. Þeir rölta svo út og segja fátt, en
annar þeirra ákvað að brjóta ísinn og spyr hvernig hans
stúlka hafi verið!

“Ég held að hún hafi verið dáin svei mér þá, hún lá bara
þarna og gerði ekkert, en hvernig var þín?”

“Ég held að mín hafi verið norn!”

“NORN,” segir félaginn og spyr hvers vegna hann haldi það!

“Jú, sko þegar ég ætlaði að vera góður við hana og nartaði
í geirvörtuna, þá rak hún við og flaug út um gluggann”.