Nú undir morgun var tilkynnt til Lögreglunnar í Keflavík að nakinn maður væri að veifa „tóli“ sínu á Aðalgötu í Reykjanesbæ. Hann fannst ekki.

Óskað var eftir aðstoð Lögreglunnar í Keflavík tvívegis að skemmtistaðnum Traffic í nótt. Klukkan 04:19 var óskað eftir lögreglu að skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu. Þar hafði stúlku verið hrint og var hún eitthvað hrufluð á eftir.
Síðan var óskað eftir lögreglu klukkan 05:22 en þar hafði stúlka sparkað í bifreið eftir að henni hafði verið vísað út af skemmtistaðnum.

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Tveir á Reykjanesbraut og mældist sá sem hraðar ók á 187 km. hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km og tveir á Njarðarbraut og mældist hraði þeirra 71 km. þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km. Annar þeirra var einnig með útrunnin ökuréttindi.
Fjögur hávaðaútköll bárust.