HEhe þessi brandari er ömurlegur (ég samdi hann sjálfur)

Það voru einu sinni hjón sem ætluðu að kaupa sér hús uppi í sveit. Fasteignasalinn var að flýta sér mjög mikið og sagði ,,já uuu 100 kall“ og þau fengu húsið á 100 kall :). Hjónin áttu 2 börn og á meðan mamman og dóttirin voru að hreinsa háaloftið voru pabbinn og strákurinn að slá grasið úti í rigningu og þrumuveðri.
Þegar mamman var að labba upp stigann hjá háaloftinu þá var mjög dimmt og það brakaði í stigunum,hún opnaði lúguna og þá skaust hún inn. ,,mamma??” kallaði dóttirin ,,mmmhmmhmhmm ekki koma inn" sagði mamman. En stelpan labbaði upp stigann það brakaði í þeim, hún opnaði lúguna og þá skaust hún inn.
Síðan leið smá tími og pabbinn fór inn og kallaði í mæðgurnar en ekkert svar. Hann labbaði upp stigann það brakaði í þeim hann opnaði lúguna og þá skaust hann inn. Síðan kom drengurinn inn furðu lostinn yfir því að enginn svaraði honum þegar hann kallaði. En hann labbaði upp stigann, það brakaði í honum, hann opnaði lúguna og þá..voru þau öll….að borða cheerios!!!!
This is it.