Að þrífa klósettið og skemmta sér vel Vinkona mömmu er alltaf að senda henni fyndinn tölvupóst og mér fannst þessi sérstaklega fyndinn :)
Svo, Enjoy…


Að þrífa klósettið og skemta sér vel.

1. Lyftu upp báðum klósettsetunum og settu hálfan bolla af gæludýrasjampói í vatnið í skálinni.

2. Taktu heimilisköttinn í fangið og strjúktu honum á róandi hátt meðan þú heldur á honum inn á baðherbergið.

3. Með einni snöggri hreyfingu: Settu köttinn ofan í klósettið og bæði lokin niður. Þú gætir þurft að standa ofan á klósettsetunni.

4. Kötturinn mun berjast um sjálfan sig og gefa frá sér furðuleg hljóð. Vertu ekkert að spá í hljóðin sem koma úr klósettinu. Kötturinn hefur virkilega gaman af þessu.

5. Sturtaðu niður þrisvar eða fjórum sinnum. Það myndar “Ofurþvott” og “Skol”.

6. Biddu einhvern að opna útidyrnar. Passaðu að enginn sé fyrir á leiðinni milli baðherbergisins og útidyranna.

7. Stattu eins langt fyrir aftan klósettið og þú getur og lyftu báðum setunum snögglega.

8. Kötturinn mun skjótast upp úr klósettinu, þjóta fram úr baðherberginu og hlaupa út þar sem hann mun þurrka sig.

9. Bæði prívatið og kötturinn verða skínandi hrein =o)

Með bestu kveðju,
Hundurinn