Ég sendi kork inn á hljóðfæraáhugamálið þar sem ég spurði hvort eikkver kynni trommarabrandara og hér eru þeir bestu sem ákveðinn aðili sagði:P

Drifter sagði þennann:

Hvað þarf marga trommara til að skipta um ljósaperu?

20. Einn til að halda perunni og 19 til að drekka bjór þar til herbergið fer að snúast.

Ahriman sagði þessa:

Hvað þarf maður að gera til að mega leggja í fatlaðrastæði? Setja trommukuðja ofaná mælaborðið

Hver er munurinn á trommara og ryksugu? Maður þarf að stinga ryksugunni í samband til að hún “sucki”

WoodenEagle sagði þennann:
Hvað er það seinasta sem að trommuleikari mundi segja?

Hey strákar ég er með hugmynd!

ASS sagði þennann:

Palli litli: “Þegar ég verð fullorðinn ætla ég að verða trommari.”
Mamman: “En Palli minn, þú getur ekki orðið bæði.”

HerraFullkominn sagði þessa:

Hver er munurinn á trommara og trommuheila?
Trommuheilinn heldur takti og stelur ekki kærustunni manns

Trommari sem er þreyttur á að vera fordæmdur fyrir að vera trommari ákvað að læra á alvöru hljóðfæri og gekk inn í hljóðfæra búð til að kaupa sér.
Hann gengur að afgreiðsluborðinu og segjir:
“Ég ætla að fá rauðatrompetinn þarna og harmonikkuna þarna”
AFgreiðslumaðurinn svarar “Okei, slökkvuliðstækið máttu fá en ofninn verður kjurr!”

Kona gengur inn í búð og segjir að hún vilji kaupa tónlistarmanna heila.

“OKay við erum hérna með trompet leikara heila á 5 dollara pundið, básúnuleikara á 10 dollara pundið og túbu leikara á 15 dollara pundið”

“En hvaða heili eru þetta þarna á bakvið?” Sðyr konan og bendir á heila í bakherbergi.

“Trommaraheili, hann er á 100 dollara pundið”

“100 dollara! Af hverju svona mikið!?”

“Veistu hvað það þarf marga trommara til að safna saman einu pundi af heila!”

gondor sagði þenann:

Hvernig veistu að trommari er að banka á hurðina hjá þér. Hann missir taktinn í fjórða höggi.

BigG sagði þennan:

Af hverju eru trommarar með einni heilasellu meira en hestar?

Svo að þeir skíti ekki á götuna í skrúðgöngum.

Tjeko sagði þennann:

Hvernig ruglaru trommara á meðan hann er að tromma?
- Setur nótnablað fyrir framan hann.

Og svo var það Morgoth sem sagði þennann:

Maður labbar inn í búð og segir: “Áttu einn af þessum Marshall Hiwatt AC30 magnara dæmum og Gobson StratoBlaster gítar með Fried Nose tremulo?”

Afgreiðslumaður: “Leyfðu mér að geta, þú ert trommari, ekki satt?”

Viðskiptavinur: “Uhm, já… hvernig vissirðu?”

Afgreiðslumaður: “Þetta er ferðaskrifstofa”

Langaði bara að deila þessu með ykkur:P