23 Leiðir til þess að vera böggandi í bíó!!!!

1. Ef þú ert efst í salnum kastaðu eina krónum niður í salinn.

2. Öskraðu: Poppstríð!!!!!! Og hentu fullt af poppi. –>BíÓ

3. Ef þetta er sorgleg mynd gráttu þá á öxl einhvers ókunnugs sem er við hliðina á þér.

4. Ef þú hefur séð myndina talaðu þá með þegar hver setning kemur…. nokkuð hátt!!!!

5. Hoppaðu upp þegar eitthvað fyndið eða flott gerist.

6. Hlæðu mjög hátt.

7. Helltu smá gosi á manninn/konuna fyrir neðan þig og ef hann/hún snýr sér við segðu að þetta var sá sem situr við hliðin á þér.

8. Farðu í hvísluleik.


9. Þegar þú labbar á sviðunu fyrir framan tjaldið, þykistu detta og farðu að gráta í plati.

10. Segðu, ef þetta er mynd þar sem eru búningar notaðir (s.s batman, Harry Potter) að þú eigir þennan búning og farðu að monta þig geðveikt mikið.

11. Farðu í eitthvað sæti sem að einhver er í og segðu að ef hann færi sig ekki þá segirðu mömmu/ pabba þínum og hótaðu honum það á meðan myndinni stendur.

12. Spurðu um smokka í sjoppunni, ef þú færð hann hlauptu inn á klósett og segðu: Anna ég fékk hann!!!!!!

13. Taktu með þér prumpublöðru og sestu á hana.

14. Sníttu þér á gólfið.

15. Settu ekki símann á silent heldur á loud.

16. Segðu upphátt hvað gerist næst.

17. Taktu með þér kodda og sæng inn í bíóið.

18. Stattu á sviðinu og öskraðu: I am your new ruler!

19. Farðu með skopparabolta og bombaðu honum eitthvert inn í salinn.

20. Taktu mjög mikið af sessum (dót sem lætur þig sitja hærra) og sestu þar sem margir eru fyrir aftan þig.

21. Dansaðu á sviðinu í hléinu.

22. Feldu gosið hjá manneskjunni sem situr við hliðin á þér.

23. Spurðu í sjoppunni hvort þú megir fá 50% afslátt því þú borgaðir fullt verð fyrir miðann.
Helga