Þrír skurðlæknar spiluðu golf og spjölluðu um færni sína í fagi sínu. Sá fyrsti púttaði og sagði um leið: “Ég er besti skurðlæknirinn í Texas! Fyrr á árinu kom til mín konsertpíanisti sem hafði misst sjö fingur. Ég splæsti þeim aftur á og 8 mánuðum seinna spilaði konsert fyrir Bretadrottningu.

Sá næsti smellti í góm og sagði: ”Já, er það? Þú slærð mér nú ekki við. Fyrir um tveim árum kom til mín maður sem hafði misst bæði hendur og fætur. Ég tjaslaði honum saman og hann vann tvöfalt gull á ólympíuleikunum í sumar.

Sá þriðji glotti bara og sagði: Þið segið það, já. Fyrir nokkrum árum fékk ég í hendurnar verkefni. Blindfullur og útúrdópaður kúreki hafði riðið hesti sínum í veg fyrir lest sem plaffaði hann niður á 130 km hraða. Það eina sem ég hafði úr að moða var kúrekahattur og hestsrass. Í dag er hann forseti Bandaríkjanna.
www.dojopan.com