Rúnar fór inn í apótek með 9 ára gömlum syni sínum. Þegar þeir áttu leið framhjá hillu sem var full af smokkapökkum spurði stráksi:,, Hvað er þetta pabbi?” ,, Þetta kallast smokkar sonur sæll. Karlmenn nota þetta til að stundu öruggt kynlíf.” Ég skil”, sagði snáðinn.,, Ég hef heyrt talað um þá í heilsufræði held ég, á blaðsíðu 69, að ég held.” Hann kíkir betur á hilluna og kippir sem inniheldur 3 smokka. ,, Af hverju eru þrír í pakka, pabbi?” ,, Þessi eru fyrir menntaskóla stráka”, sagði pabbinn eins og hann væri að rifja upp gamlar og góðar minningar . ,, Einn fyrir föstudag, einn fyrir laugardag og einn fyrir sunnudag. “ ,,Kúl” sagði sá stutti. Þá rak hann augun í smokkapakka með sex smokkum og spurði fyrir hverja svona pakki væri. ,, Þetta er fyrir háskólastrákana, 2 á föstudegi, 2 á laugardegi og 2 á sunnudegi.
,,VÁ” sagði guttinn og það glaðnaði heldur yfir honum . ,EN HVERJIR NOTA ÞESSA?”, sagði hann og benti á pakka með 12 smokkum í. Pabbinn andvarpaði og sagði:,, Þessir eru fyrir gifta menn. Einn fyrir janúar, einn fyrir febrúar, einn fyrir mars……………………

Flutningabílstjóri, sem hafði verið á ferð í með fragt í þrjár vikur samfleytt, stoppaði á litlu vændishúsi, rauk beint að ,,Maddömunni”, rétti henni 30.000 kall og sagði: ,, Ég vil fá ljótustu dömuna á svæðinu og samloku með skinku og osti.” Maddaman leit hissa á bílstjórann. ,, En herra minn. Fyrir þessa upphæð geturðu fengið bestu dömuna mína og þriggja rétta máltíð með víni.” Flutningabílstjórinn bretti upp ermarnar og setti í Brýnnar. ,,Heyrðu fröken góð. Ég er ekki graður. Ég er með heimþrá!”

Lára fór inn í gæludýrabúð og rak strax augun í glæsilegan páfagauk sem kostaði 5.000 krónur. ,,Af hverju er hann svona ódýr?” spurði Lára. Gæludýrabúðareigandinn leit á hana og sagði:,, sko. Málið er að þessi páfagaukur hefur verið í mörg ár í vændishúsi og getur verið ansi orðljótur. Hreint hroðalega. Þess vegna er hann á útsöluprís.” Lára ákvað samt sem áður að kaupa gauksa, fór með hann heim og hengdi búrið upp í borðstofunni. Fuglinn leit í kringum sig, síðan á Láru og sagði:,,Nýtt hús, nú húsfrú .” Konunni varð brugðið en fannst þetta síður en svo ljótt orðbragð. Nokkru síðar komu dætur Láru heim úr háskólanum og fuglinn sagði um leið: ,,Nýtt hús, nú húsfrú og nýjar hórur.” Stelpurnar voru dálítið móðgaðar en byrjuðu svo að hlæja að þessum fyndna fugli. Augnabliki síðar kemur eiginmaður Láru heim úr vinnunni. Páfagaukurinn leit á hann og sagði:, Hæ Helgi!.”