Þetta er semsagt ráð frá karli til karla:

Já, ég og unnusta mín vorum að gifta okkur fyrir mánuði, já takk fyirr það. En ég er hér til að segja öðrum mönnum þarna úti þessa sögu sem gæti hjálpað þeim í lífinu. Það byrjaði allt þannig þegar ég og kærasta mín vorum búin að trúlofast. Hún á mjög HOT yngri systur en ég hafði aldrei sýnt henni áhuga, fyrr en skyndilega byrjaði hún að sýna áhuga á mér eftir að ég trúlofaðist. Hún byrjaði að blikka mig í matarboðum lyfta pilsinu sínu fyrir framan mig og gera bara svona eitthvað heitt og sexy, bara til að sýna mér. Einn daginn hringdi hún og sagði að ég þyrfti að koma til hennar, við þyrftum að senda út boðskortin saman á meðan kærasta mín var að gera annað brúðkaupsstússerí. Nú þegar ég kom til hennar tók hún á móti mér, bara í nærfötum. Hún sagði við mig: “Notaðu sénsinn núna, því að þú munt aldrei aftur geta verið með annari konu en systur minni. Hún byrjaði að klifra hægt og rólega upp stigann og blikaði mig áður en hún hvarf inn á ganginn uppi. Ég stóð þarna agndofa en gekk svo að dyrunum. Þegar ég opnaði útidyrnar stóð faðir stúlknanna fyrir utan, með tárin í augunum. ”Tengdasonur góður, þér tókst að sanna að þú myndir aldrei halda fram hjá dóttur minni. Vertu velkominn í fjöldkylduna, þú stóðst prófið!" Og nú lifum við konan mín saman í sátt og samlyndi. —Og boðskapurinn er: Alltaf, ALLTAF skilja smokkana eftir í bílnum þínum!