Feitur en átti kærustu Ég var einu sinni rosalega feitur, 135 kíló.

Og ég veit hvað þið eruð að hugsa. Þið haldið ábyggilega að ég hafa huslað alveg helling af stelpum. En svo var það ekki í raun. Það er ekki nóg að vera fyndinn. Fyrsta kærastan mín var rosalega feimin. Hún hló aldrei að neinu sem ég sagði ef annað fólk var nálægt. En þegar við vorum komin upp í rúm þá gat ég látið hana hlægja alveg helling. Ég fettaði upp á tippið á mér. Breytti því í hamborgara,pulsu,hund,mann og eitthvað fleira. Og þá hló hún eins og brjálæðingur. En svo þegar ég hætti með henni vildi mig engin önnur stelpa. Ég meina hvaða stelpa vill gaur sem fær kærustuna sína bara til að hlægja í bólinu ?

Hljómar illa ekki satt.

Hún var líka svo grönn. Það var ekki nein fita á henni , nema jú auðvitað þegar ég var ofan á .

Eins og allir kvenmenn þá var hún óörugg með útlit sitt. Hún sagði t.d. við mig :

,, Ég er ekkert sæt , ég er eiginlega ljót “

Sko ég ligg við hliðina á henni og horfi á hana, þessa GULLfallegu stelpu, og hugsa. Þetta er týpískt eitthvað sem einhver gella myndi segja. Það færi nú engin ljót stelpa að benda á það og reyna beina athygli að því hversu ljót hún væri. Þannig að hún hlýtur eiginlega að vita að hún sé falleg.

Hún var samt alltaf að segja að hún væri með lítil brjóst og ég vissi aldrei hvað ég átti að segja við því vegna þess að kannski var hún að miða við mín brjóst , sem á þessum tíma voru mun stærri en hennar. Já ég held einmitt að hún hafi hætt með mér út af því. Það fór víst í taugarnar á henni að ég leit betur út í brjósthaldara en hún.

Svo er líka annað slæmt við það að vera feitur. Fólk er að hlægja að manni þegar maður lendir í slysum. Einu sinni braut ég klósettið í skólanum mínum. Ég hafði farið á klósettið til þess að kúka og braut óvart klósettið með því að hoppa upp á það. Ég hafði gert það til þess að opna glugga sem ég náði ekki upp í til að lofta út og allir héldu að ég hefði brotið það með því að setjast á það. En enginn hafði það í sér að spurja mig hvort það væri í lagi með mig. Fólk hló bara að mér.

Og ég var einu sinni með bekknum í skólaferð niður laugaveginn. Mamma var nýbúin að kaupa handa mér glænýjan, dýran, fínan brúnan jakka. Og þá flaug dúfa yfir mig og dritaði á mig. Skeit á jakkann. En það var allt í lagi ,ég var með auka jakka með mér og mér var alveg sama. En krakkarnir gerðu hörku grín að mér.

Þið eruð kannski að spá í því hvernig ég varð svona feitur. Jú ég borðaði bara nóg af óhollustu og hreyfði mig ekki neitt. Sat bara inni og spilaði í tölvuleikjum alla daga og drakk minnst 2l kók á dag.

En hvernig og hvenær ákvað ég að létta mig?

Jú ég ákvað að létta mig eftir Spánarferð sem ég fór með fjölskyldunni í. Ég lá á ströndinni ber að ofan í herrasundskýlu, sem reyndar hvarf eiginlega inn í spikið á mér, og green peace, hvalfriðunarsamtökin, komu og hentu mér út í sjóinn.

Svo sá ég á ljósmyndum að ég leit alls ekki út eins og David Hasselhoff ber að ofan. En hann var aðal átrúnaðargoðið mitt á unglingsárunum.

Ég létti mig um 40 kíló á 3 mánuðum. Fyrstu 5 kílóin fyrsta daginn. Ég tók mig nefnilega til og skóf allan skítinn innan úr fellingunum og úr naflnum, fann sko hálft kíló af ló í honum. En svona án djóks. Mér fannst á þessum tímum ekkert merkinlegt að fólk var að létta sig um 20 kíló á einu ári. Sko ég léttist um 20 kíló í hvert skipti sem ég fór að kúka.

Ég kveð að sinni og bendi á síðuna mína þar sem finna má fleira efni í þessum dúr :
www.boxser.tk