Það er eins gott að halda sig bara heima.


Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum.
Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni.
Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. “Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það,” segir hún og klæðir sig í flýti.
“Stattu bara þarna grafkyrr.” Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: “Elskan hvað er nú þetta?” “Þetta, æji þetta er bara stytta,”
segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart.“ Ekkert er rætt meira um ”styttuna“, ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. ”Gjörðu svo vel,“ segir
hann. ”Ég stóð eins og hálviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt.“








Steikt egg!

Kona ein var að steikja egg handa sínum heitt elskaða eiginmanni.
Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið.
Varlega varlega…! Settu meira smjör! Guð hjálpi mér…!
Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!

Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR! Eggin munu
festast!

Varlega…VARLEGA!Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar!
ALDREI!
Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni?
Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta.

Nota salt. NOTA SALT! S A L T! Konan horfði á hann og sagði. ” Hvað er
eiginlega að þér?
Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?
“Eiginmaðurinn svaraði rólega, ”Mig langaði bara að leyfa þér að finna
hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum.








Fangi.


Fangi sleppur úr
fangelsi þar sem hann
hefur verið í 15 ár.

Á flóttanum finnur hann
hús og brýst inn í það
til að leita að peningum
og byssum, en hann
finnur bara ungt par í
rúmi.
Hann skipar stráknum að
fara úr rúminu, og
bindur hann fastann á
stól. Á meðan hann er að
binda stelpuna uppi í
rúmi…hallar hann sér að henni,
kyssir hana á
hálsinn og fer svo inná
baðherbergi. Á meðan
hann er þar segir
strákurinn við stelpuna:
Hey þessi gaur er
fangi sem hefur flúið,
sjáðu bara fötin hans!


Hann hefur örugglega
verið lengi í fangelsi
og hefur ekki séð konu í
mörg ár. Ég sá
hvernig hann kyssti
hálsinn á þér. Ef hann
vill kynlíf ekki segja
nei eða neitt, gerðu bara
það sem hann segir þér
að gera,
veittu honum fullnægingu.
Þessi gaur hlýtur að
vera hættulegur og ef
hann verður reiður
drepur hann örugglega
okkur bæði. Vertu sterk
elskan, ég elska þig!


Konan svarar "Hann var
ekki að kyssa á mér
hálsinn, hann var að
hvísla að mér
að hann væri
hommi og finndist þú vera
mjög sexy og spurði
hvort við ættum eitthvað
vaselín inná klósetti.
Vertu sterkur ég elska
þig líka!!!