Einn góðan veðurdag var ljóska nokkur að keyra niður götu. Þegar henni var litið til hægri sá hún hvar önnur ljóska sat og var að róa árabát á grasbletti og ekkert vatn sjáanlegt. Ljóskan á bílnum neglir niður í miklu reiðiskasti og strunsar útur bílnum og öskrar á hina ljóskuna: ,,Hvað í fjandanum heldurðu að þú sért að gera ??? Það eru heimskupör sem þessi sem koma óorði á okkur ljóskurnar ! Ef ég kynni að synda myndi ég koma til þín og lúberja þig !”
———————————————-

Giftur maður átti í leynilegu ástarsambandi með eiknaritaranum sínum. Dag einn þegar ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar þar sem þau áttu villta eftirmiðdagsstund. Eftir öll lætin voru þau orðin dauðþreytt og sofnuðu. Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn byrjar að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum sínum að fara með skóna hans út og nudda þeim í grasið og moldina. Furðu lostin konan skilur ekki alveg hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu að síður. Hann skellti sér svo í skóna og keyrði heim. ,,Hvar hefuru eiginlega verið maður ?´´ spurði konan eiginmanninn þegar hann kom inn um dyrnar. ,,Elskan ég get ekki logið að þér, ég á í leynilegu ástarsambandi við einkaritarann minn og við erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag, svo sofnuðum við og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8.´´ Konunni varð litið á skónna hans og sagði: ,,Helvítis lygarinn þinn, þú ert búinn að vera að spila golf í allan dag !!!´´