Þegar börnin ykkar eru óstýrlát getið þið þó huggað
ykkur við þær hugsanir
að almætti Guðs náði ekki til barna Guðs.

Þegar Guð var búinn að skapa himinn og jörð, skapaði
hann Adam og Evu.
Og það fyrsta sem hann sagði við þau var: “MÁ EKKI”.

“Má ekki hvað?” svaraði Adam.

“Má ekki borða hinn forboðna ávöxt” sagði Guð.

“Forboðna ávöxt? Eigum við forboðinn ávöxt? Hei, Eva!.. við eigum
forboðinn ávöxt!!”

“Nöö-hau”

“Júú-hau”

“Ekki borða þann ávöxt” sagði Guð.

“Akkgurru?”

“Af því ég er pabbi ykkar og segi það!” sagði Guð og velti fyrir sér
af
hverju hann hafði ekki bara hætt þegar hann var búinn að skapa fílana.

Nokkrum mínútum seinna sá Guð börnin vera að gæða
sér á epli og varð reiður.

“Sagði ég ykkur ekki að það væri bannað að borða
þennan ávöxt?” spurði fyrsta foreldrið.

“Júdd” svaraði Adam.

“Af hverju gerðuð þið það þá?”

“Veiddiggi” svaraði Eva.

“Hún byrjaði!” sagði Adam.

“Nöö-hau”

“Júúhú”

“Gerðir það víst!”

“Gerði það ekki!”

“VÍÍÍÍSSSST!!!!”

Þegar Guð var alveg búinn að fá nóg af þessum tveim
villingum ákvað hann að refsa þeim með því að láta þau sjálf eignast
sín
eigin börn. Og þannig hefur þetta gengið, svo þú getur huggað þig við

fyrst Guð gat ekki alið sín börn, hvers vegna heldur þú að það sé
eitthvað
auðvelt fyrir ÞIG?