Nokkrir menn voru saman komnir til að spila póker.
Meðal þeirra var maður nokkur að nafni Guðmundur.
Þegar líða tekur á kvöldið fara þeir að tala um syni sína og
eru flestir þeirra afar stoltir af sonum sínum!
Þegar Guðmundur þarf að skreppa á klósettið
byrja félagar hans að pískra: Aumingja Guðmundur,
segir Halli. Sonur hans er hárgreiðslumaður og hommi.
Engin framtíð í því!
Sonur minnn er öflugur á fjármálamarkaðnum. Hann er ekki nema 29 og
þegar hann fór í afmæli vinar síns gaf hann honum glænýjan BMW!
Þá segir Siggi:Það er nú ekkert! Sonur minn er orðinn mjög víðamikill
á fasteignamarkaðinum, aðeins 27 ára og þegar hann fór í afmæli vinar síns
þá gaf hann honum nýja íbúð í Skerjafirðinum!
Í þessu kemur Guðmundur af klósettinu og segir:
Missti ég af einhverju?
Nei segja pókerfélagarnir!
Við héldum bara áfram að tala um strákana okkar!
Já segir Guðmundur. Ég verð nú að
viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum þegar strákurinn minn
kom út úr skápnum, en hann er alveg að plumma sig.
Hann er með tvo í takinu núna!
Annar gaf honum BMW og hinn gaf honum íbúð í Skerjafirðinum!!!