Þetta átti fyrst að vera svar við brandaranum Apartment to Rent sem að er snilldarbrandari en margir föttuðu hann ekki og hér er þýðingin :)


Bissnessmaður hitti fallega konu og samþykkir að eyða nótt með henni fyrir 500$ Þau gera það.

Áður en hann fer, segist hann ekki hafa neinn lausan pening á sér, en segist ætla að láta ritara sinn senda sér það í pósti merkt “LEIGA FYRIR ÍBÚД.
Á leiðinni í vinnuna sér hann eftir öllu saman og fattar að drátturinn var ekki allra peninganna virði. Svo að hann lætur ritarann breyta upphæðinni í 250$ og setja eftirfarandi nótu með:

Kæra frú:

Meðfylgjandi er tékki uppá 250 dollara.
Ég er ekki að senda upphæðina sem við sömdum um af því að þegar ég leigði íbúðina hélt ég að:

1) Hún hefði aldrei verið notuð áður.

2) Að hún væri upphituð.

3) Að hún væri nógu lítil til að mér þætti hún þægileg og heimilisleg.

En ég komst að því að hún hefði verið notuð áður, þar væri enginn hiti og að hún væri of stór.



Eftir að konan fékk bréfið þá sendi hún það til baka og svaraði að bragði:

Kæri herra:

Fyrst, þá get ég ekki skilið afhverju þú gætir haldir að svona falleg íbúð væri enn ónotuð.

Með hitann, það er nóg af honum, maður verður bara að kunna að kveikja á honum.

Um rýmið, þessi íbúð er af mjög hentugri stærð en ef þú hefur ekki húsgögnin til að fylla hana þá skaltu ekki áfellast leigusalann

Sendu fullt leigugjald eða ég verð að neyðast til þess að tala við fyrrverandi leigusala..!