Eithvað af eftirfarandi sögum fær ykkur kannski til að halda að ég sé sjúkur og þið megið halda það ef þið viljið. Þetta er ekki beint það fyndið þó nafnið gefur það til kynna en þetta eru sögur af fólki sem hefur dáið á heimskulegan hátt, sumt efa ég sjálfur að það sé satt.

Einu sinni var maður sofandi, svoldið ofsóknarbrjálaður og hafði semsagt hlaðna byssu á náttborðinu hjá sér ásamt síma. Eina nótt þegar símin hringdi, tók maðurinn upp byssuna og skaut sig í hausin.

Einu sinni var maður sem fannst látin í rúminu sínu inni herbergi sínu. Þegar löggan rannsakaði málið, komst hún að því að maðurinn hafi kafnað. Maðurinn hafði semsagt ekkert étið nema Baunir í um þaðbil átta vikur og hafði kafnað í sínu eigin metangasi(gasið sem kemur þegar maður leysir vind).

Einu sinni var bóndi, í tyrklandi minnir mig, sem missti kjúkling sem hann átti niður foss og hann ætlaði að sækja hann en dó á leiðini niður. Síðan kom annar bóndi og ætlaði að bjarga honum(bóndanum) og dó líka á leiðini niður. Síðan kom önnur manneskja og reyndi það sama og dó líka á leiðini niður, svo gerðist þetta við tvær manneskjur í viðbót. Þegar björgunarsveitin kom á staðin voru fimm manneskjur látnar fyrir neðan fossin en kjúklingurin sem kom þessu öllu á stað lifandi.

Ég efa að þetta sé satt en skrifa það samt það gæti verið satt.
Það var mjög há bygging eitt sinn einhversstaðar í ameríku og þar var maður að flytja verkfæra kassa uppá þak, og fékk þá snilldar hugmynd að festa hring efst upp, setja band í gegnum og og binda verkfæra kassan í og hífa hann upp. Þegar verkfærakassin var kominn upp hætti hann að reyna á sig og komst að því að verkfæra kassin var þyngri en hann, svo hann þaut upp hangandi í klaðlinum, festi tvo putta í hringnum og braut þá og verkfærakassin datt niður með svo miklum skell að nokkur verkfæri duttu úr og gerðu kassan léttan. Maðurinn þaut niður og braut báða fætur og rifbeinin við lendingu, kassinn þaut upp og hann sleppti kaðlinum og þá fór kassin beinustu leið niður og í hausin á honum, þetta varð til þess að hann lést.

Einu sinni fór maður inn á veitingastað og reyndi að reyna hann og miðaði byssu á afgreiðslumannin og heimtaði peningana. Afgreiðslumaðurinn neitaði að láta hann fá peningana og setti þjófavarnarkerfið á gaurin hótaði að skjóta og gerði það en þá skaust vatn út úr byssuni, þá tók barþjónnin upp haglara og skaut hann.