Þegar börnin ykkar eru óstýrlát getið þið þó huggað ykkur við þær hugsanir
að almætti Guðs náði ekki til barna Guðs.

Þegar Guð var búinn að skapa himinn og jörð, skapaði hann Adam og Evu.
Og það fyrsta sem hann sagði við þau var: “MÁ EKKI”.

“Má ekki hvað?” svaraði Adam.

“Má ekki borða hinn forboðna ávöxt” sagði Guð.

“Forboðna ávöxt? Eigum við forboðinn ávöxt? Hei, Eva!.. við eigum
forboðinn ávöxt!!”

“Nöö-hau”

“Júú-hau”

“Ekki borða þann ávöxt” sagði Guð.

“Akkgurru?”

“Af því ég er pabbi ykkar og segi það!” sagði Guð og velti fyrir sér af
hverju hann hafði ekki bara hætt þegar hann var búinn að skapa fílana.

Nokkrum mínútum seinna sá Guð börnin vera að gæða sér á epli og varð
reiður.

“Sagði ég ykkur ekki að það væri bannað að borða þennan ávöxt?” spurði
fyrsta foreldrið.

“Júdd” svaraði Adam.

“Af hverju gerðuð þið það þá?”

“Veiddiggi” svaraði Eva.

“Hún byrjaði!” sagði Adam.

“Nöö-hau”

“Júúhú”

“Gerðir það víst!”

“Gerði það ekki!”

“VÍÍÍÍSSSST!!!!”

Þegar Guð var alveg búinn að fá nóg af þessum tveim villingum ákvað hann að
refsa þeim með því að láta þau sjálf eignast sín eigin börn. Og þannig
hefur þetta gengið, svo þú getur huggað þig við að fyrst Guð gat ekki alið
upp sín eigin börn, af hverju ætti það að vera eitthvað auðvelt fyrir ÞIG?