Fjölskylda ein átti tvíbura, sem áttu aðeins útlitið sameiginlegt. Ef öðrum fannst vera of heitt, fannst hinum tvíburanum það vera of kalt. Ef annar sagði að sjónvarpið væri stillt of hátt, sagði hinn að það þyrfti að hækka það. Andstæður í öllum hlutum, annar var eilífur bjartsýnismaður, en hinn var algjör svartsýnismaður.

Bara til að sjá hvað mundi gerast, á jólunum, fyllti pabbinn herbergi svartsýna tvíburans með öllum leikföngum sem hægt var að hugsa sér. Herbergi bjartsýna tvíburans fyllti hann af hrossaskít.

Um kvöldið kom pabbinn við í herbergi svartsýna tvíburans og sá hann sitja innan um nýja dótið sitt grátandi.

\“Afhverju ertu að gráta?\” spurði pabbinn.

\“Út af því að vinir mínir eiga eftir að vera afbrýðsamir, ég þarf að lesa allar þessar leiðbeiningar áður en ég get notað þetta dót, ég á alltaf eftir að þurfa ný batterí, og leikföngin mín eiga á endanum örugglega eftir að brotna\” svaraði svartsýni tvíburinn.

Þegar hann kom við í herbergi bjartsýna tvínburans, sá pabbinn hann dansandi af gleði innan um hrossaskítinn. \“Afhverju ertu svona glaður?\” spurði hann.

Bjartsýni tvíburinn svaraði:

\“Einhverstaðar hérna inni, hlýtur að vera hestur!\” =D

Þetta er þýtt af
http:// www.spicyjoke.com/extremely_optimistic.html
er aðeins fyndnara á ensku