Feðgar af Ströndum komu í fyrsta sinn til
Reykjavíkur og fóru meðal
annars í fyrsta sinn í Perluna. Hakan á þeim féll
oní bringu oft og einatt íferðinni svo undrandi voru
þeir á mörgu sem fyrir augu bar sem ekki var að
finna í sveitinni. Sérstaklega vakti þó athygli
þeirra í Perlunni tveir glansandi silfurlitaðir veggir
sem ýmist opnuðust eða lokuðust.

Drenghnokkinn spurði: Hvað er þetta
eiginlega, pabbi? Faðirinn, sem
hafði aldrei séð lyftu fyrr á ævinni svaraði: Sonur
sæll, ég hef aldrei séð nokkuð þessu líkt á ævinni
og ég veit hreinlega ekki hvað þetta er.

Meðan feðgarnir stóðu hugfangnir fyrir framan
veggina með undrunarsvip á andlitinu bar þar að
þéttholda konu í hjólastól sem ók að hreyfanlegu
veggjunum og þrýsti þar á hnapp. Veggirnir opnuðust
og konan í hjólastólnum fór inn í lítið rými.
Síðan lokuðust veggirnar og Strandafeðgar horfðu á
litla hringlaga hnappa með tölustöfum sem blikkuðu
með reglulegu millibili.
Þeir fylgdust með þessu uns efstu tölunni var náð og
þá fóru ljósin að blikka í öfugri röð. Að lokum opnuðust
veggirnir og út gekk glæsileg ljóshærð kona á þrítugsaldri.

Faðirinn sem starði dolfallinn á ungu konuna
hnippti í soninn og hvíslaði í eyra hans:
“Farðu og sæktu mömmu þína.”