Jónas og Magga voru nýgift og nú ætlaði Jónas að setja nokkur lög.

“Ég kem heim þegar ég vil, ef mig langar til þess, á hvaða tíma sem er og
án þess að fá eitthvert nöldur frá þér. Ég geri ráð fyrir að fá
frábæran mat á borðið á hverju kvöldi, nema ég láti þig vita annað. Ég fer
í lax, rjúpu og fyllirí með gömlu félögunum þegar ég vil og þú mátt ekki
rexa neitt útaf því. Þetta eru mínar reglur! Hefur þú etthvað við þær að
athuga?”

“Nei, nei,” sagði Magga. “Svo framarlega sem þú gerir þér grein fyrir að
hér verður stundað kynlíf á hverju kvöldi klukkan hálf níu - hvort sem þú
ert heima eða ekki.”