Þú veist að þú ert CS lúði ef….

Þér hættir oft til að segja hluti eins og LOL eða OMG í miðri setningu,

Þú ferð inná Half Life áhugamálið á Huga a.m.k 3 á dag bara til að sjá “what´s going on”,

Þú fékkst þér nýjan hárskera vegna þess að þú fréttir að sonur hans væri í öðru klani en þú,

Fleiri manneskjur þekkja þig með netnafninu þínu en þínu raunverulega nafni,

Í hvert einasta skipti sem þú pantar pizzu er það vegna þess að þú ert að fara á LAN,

Þú átt meðlima kort í Gamedome, K-Lan og alla hina staðina,

Þú ert orðinn ónæmur fyrir svitalykt af sjálfum þér,

Þú reynir eins og þú getur að fá skólastjórann þinn til að leyfa þér að hafa Lan kvöld í skólanum,

Þú rakaðir af þér allt hárið til að sjá betur á skjáinn,

Undirstöðufæðan í þínu mataræði eru flögur, gos, kex og pizzur,

Þegar þú skrifar jólakort til ættingja þinna skrifaru
“G-J & G-N-Ár”,

Þú sendir jólakort til clanfélaga þinna,

Þú tekur þér frí í skólanum til þess að þú getir spilað CS aðeins lengur,

Þú getur ekki haldið þér vakandi í skólanum vegna þess að þú varst vakandi alla nóttina við það að spila CS,

Helsta afþreyingin þín er að finna nýjar skammstafanir eins og ROFLMAO eða GCM,

Upphafssíðan þegar þú ferð á netið er www.cs.com,

Þú kvartar undan göllum í byssunum í CS en hefur ekki hugmynd um það sem er að gerast á alþingi þessa dagana.
In such a world as this does one dare to think for himself?