Keðjubréf þetta var fyrst sent af stað af nokkrum frjósömum mönnum til að bæta kynlíf sitt og þitt. Frábrugðið öðrum keðjubréfum þá kostar þetta ekki neitt, þú getur aðeins unnið!!!

Áframsendu einfaldlega þennan tölvupóst til sjö vina þinna sem eru jafn frjósamir og þú. Þegar því er lokið deyfir þú konuna þína (eða kærustu), setur hana í stóran kassa (ekki gleyma loftgötum) og sendir kassann í póst til þess sem stendur efstur á póstlistanum.
Fljótlega mun þitt nafn vera það efsta á listanum og þú munt fá senda
í pósti 26.743 kassa með konum. Samkvæmt tölfræðilegri kenningu
normaldreifingar má reikna það út að í sendingunni munu vera:

0,5 ungfrú Ísland
2,5 fyrirsætur
46 villtar vergjarnar konur
323 aðlagandi vergjarnar konur
2.019 konur sem fá reglulega raðfullnægingu
4.019 tvíkynhneigðar konur

Í heildina gerir þetta 6.410 konur sem eru einfaldlega heitari, opnari
og glæsilegri en gamla þreytta kellingin þín sem þú ert nýbúinn að senda í burtu með pósti. Það sem betra er er að það er 100% öruggt að gamla kellingin þín er ekki meðal þeirra sem þú færð sendar.

BRJÓTTU EKKI KEÐJUNA UNDIR NOKKRUM KRINGUMSTÆÐUM!

Einn sem sendi bréfið bara til 5 í stað 7 vina sinna fékk í staðinn
gömlu konuna sína senda aftur til sín í pósti, enn klædda í ökklasíða
morgunsloppinn sinn með angúruullarkraga og með rúllurnar í hárinu.
Búin að þjást af tveggja vikna mígreni og ekki sjón að sjá hana í framan eftir þetta litla ferðalag. Sama dag flutti alþjóðlega ofurfyrirsætan (sem búið hafði hjá honum síðan konan var send í burtu) út frá honum og inn til besta vinar hans (sem kauði hafði ekki sent keðjubréfið til).

Á meðan ég sendi áfram þennan tölvupóst hefur sá sem stendur sjötti
fyrir ofan mig á póstlistanum tekið við 238 konum og liggur hann nú á
endurhæfingardeild Landsspítalans háskólasjúkrahúss vegna mikillar
ofreynslu. Fyrir utan sjúkrastofuna hans bíða hans 326 kvennakassar
aukalega.

ÞÚ VERÐUR AÐ TREYSTA ÞESSUM TÖLVUPÓSTI!

Þetta er kjörið tækifæri til að lifa sómasamlegu kynlífi, engir dýrir
kvöldverðir, engin klukkutímalöng símtöl þar sem talað er um lífið og
tilveruna en allt sem þú í rauninni vilt er að fá hana með þér upp í
rúm og engar súrar tengdamæður. Heldur engar óþægilegar samræður um
trúlofun og brúðkaup. Hikaðu þess vegna ekki við að senda þennan póst
áfram til 7 bestu vina þinna.

Ps. Ef þú átt enga konu þá sendirðu bara ryksugu, það er sama
prinsipp. Þegar hún sýgur ekki lengur þá skiptirðu henni bara út.