Brandarar


Hver er munurinn á Spice Girls myndin og klámmyndum?
Það er betri tónlist í klámmyndum


Hvað er líkt með ljósku og Benz ???
Þú lánar ekki Benzinn.. :)


Hvað þarftu margar ljóskur til að búa til súkkulaðibitakökur ???
Tíu.. eina til að hnoða degið.. níu til að skræla m&m!!!


Hvernig drekkir þú ljósku ???
Lætur spegil í botninn á baðinu.!!!


Hvað segir kærasti ljóskunar við ljóskuna þegar hún er ekki í stuði og segir NEI!!!
Hérna ástin fáðu þér annan bjór..


Hvert er mökunarkall ljósku ???
OHHH!!! ég er svoooooo full !!!!


Afhverju eru Austurlandarmenn svona klárir???
Engnar ljóskur !!!


Afhverju eru ljóskubrandarar svona stuttir ???
Til þess að karlmenn skilji þá !!!


Einn léttur úr firðinum!
Kona ein í Hafnarfirð vaknaði eitt sinn snemma á sunnudagsmorgni ákvað að eiga rólegan og notalegan morgunn,
hellti uppá kaffi, ristaðibrauð og kom sér vel fyrir. En einkvað vantaði til að fullkomna morguninn og það var Mogginn. Þar sem hún var kviknakin kom smá hik á hana en hún hugsaði með sér ,,það er svo snemmt að enginn er kominn á stjá.“ Svo að hún skellti sér niður stigann á loðbrókinni einni fata og sótti Moggann sinn. Þegar hún kom upp aftur sá hún að hurðin að íbúð hennar hafði lokast. Þarna stóð hún þarna í stigaganginum kviknakin með Moggann í höndunum og komst ekki inn til sín þá skyndilega heyrir hún útidyrnar opnaðar og fótatak þrammandi upp stigann. Nú voru góð ráð dýr en þar sem dísin var hreinræktaður Hafnfirðingur var hún fljót að finna lausn á vandanum. Hún tróð hausnum inn í ruslalúguna og þar hékk hún föst. Þá kom sjóari sem var að koma úr Smugunni þrammandi upp stigann og við honum blasti ber kvenamans botn. Hann var ekki lengi að hugsa sig um og skellti sér á kvenmanninn. Þegar hann hafði lokið sér af leit hann á kvenmanninn og sagði: ,, Bölvaðir asnar eru þessir Hafnfirðingar, að henda svona heillegum kvenmanni.”



Gosi vildi breyta til og tók saman við konu. Ekki var langt um liðið er Gosi fór til fundar við trésmiðinn og hann ráða sér heilt í
vandræðum sínum. “Konan kvartar sáran undan flísum úr mér, hvað er til ráða?” Trésmiður taldi málið einfalt viðureignar og rétti Gosa örk af fínum sandpappír. Nokkru síðar hittast þeir félagar á förnum vegi og trésmiður spyr hvernig gangi.
“Fínt” segir Gosi. “Konan er þá hætt að kvarta”, segir smiður. “
Konan!” svaraði Gosi, “mér líkaði svo vel við sandpappírinn að ég lét bara konuna róa.”



Lögregluþjónn stöðvaði gamla konu.
-Þú keyrir allt of hratt. Hér er 50 km hámarkshraði en þú keyrðir á 80 km.
-Já, en á skiltinu þarna stendur 80.
-Það er vegnúmerið
Vegnúmerið, bíddu nú við, þá var þetta ekki 180 km hámarkshraði áðan.


-Sjáðu þennann. Hann hlýtur að vera boxari.
-Nei, ég þekki hann. Hann pússar kvennaklefanna í sundlauginni.


-Bandaríkjamenn eru víst búnir að finna upp vél sem uppgötvar þegar þú ert að ljúga.
-Iss, ég er lengi búinn að vera giftur einni slíkri.


Einu sinni var Hafnfirskur vísindamaður að gera eldflaug til að senda til sólarinnar. Þegar annar vísindamaður gekk framhjá sagði hann: Þú getur ekki sent þetta til sólarinnar, það brennur til agna í hitanum.
-Djöfull geturðu verið vitlaus. sagði Hafnfirðingurinn.- ég sendi hana auðvitað um nóttu.


-Vilt leika við nýja hundinn minn fyrir mig?
-Æ, ég veit ekki, bítur hann?
-Það er það sem ég vill finna út.


Maður einn kom móður og másandi inn á bensínstöð og spurði -Hvað geta mörgæsir orðið stórar? -Svona tveir metrar. Svaraði afgreislumaðurinn. -Almáttugur, þá hef ég keyrt yfir nunnu.


Hafnfirðingur tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Leigubílstjórinn reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?“
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!” skríkti leigubílstjórinn og Hafnfirðingurinn kinkaði kolli og klóraði sér.
Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?“
,,Nei, Siddi, vinur. Það veit ég ekki, hver er það?” svaraði eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík,“ sagði þá Hafnfirðingurinn, kinkaði kolli og klóraði sér!


Íri var á bar og sat að sumbli. Þegar hann var búinn að fá nóg og ætlaði að standa upp af barstólnum
datt hann beint á andlitið. Hann reyndi að standa upp, en datt aftur. Þá skreið hann út að hurð. Þar
reyndi hann að standa upp og aftur datt hann. Hann skreið út og ákvað að skríða þessa 600 metra
heim til sín. Þar reyndi hann enn eina ferðina að standa upp og enn sama sagan hann datt. Hann skreið
upp stigana og skreið svo upp í svefnherbergi og datt beint á andlitið í hjónarúmið og sofnaði.
Morguninn eftir vaknaði hann við að konan hans öskraði: „Ómar varstu á fylliríi eina ferðina enn.” Já,
sagði hann. „Þeir voru að hringja frá barnum, þú gleymdir hjólastólnum aftur.“


Einu sinni voru fjórar nunnur að fara til Himnaríkis. Þar hittu þær Lykla-Pétur og spurðu hann hvernig
þær kæmust inn. Hann sagði að þær verði að svara einni spurningu og spurði svo fyrstu nunnuna.
„Hefurðu einhverntímann komist í snertingu við karlmann.” Hún svaraði, „ég hef bara snert einn með
puttanum.“ Þá sagði Lykla-Pétur: „þvoðu þér þá um puttann og gakktu inn.” Hún gerði það. Svo
spurði hann næstu nunnu sömu spurningar og hún svaraði: „Ég hef bara faðmað einn.“ Lykla-Pétur
sagði þá: „Þvoðu á þér handleggina og gakktu inn.” Það gerði hún. Þá ryðst sú fjórða framfyrir þá
þriðju og Lykla-Pétur spyr. „Af hverju ryðstu framfyrir systur þína?“ Þá svarar hún. „Ég ætla sko ekki
að þvo mér um munninn eftir hún þvær sér um rassinn.




Eldri hjón komu nýlega inn á McDonalds og pöntuðu BigMac með gosi á tilboði. Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu gosinu á milli sín. Maðurinn byrjaði að borða en konan sat og horfði á. Stúlka sem var að þrífa stóðst þetta ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.
Gamli maðurinn svaraði: „Við erum búin að vera gift í 50 ár og við höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við breytumst ekki úr þessu.“ Stúlkan spurði konuna næst hvers vegna hún borði ekki og gamla konan svaraði: „Hann er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er búinn.“




Jóhann forstjóri kom afskaplega þreyttur heim og sagði við konuna að hann hafi aldrei áður orðið eins þreyttur í vinnunni. Konan vildi vita hvað Jóhann hefði gert sem reyndi svona á hann. Jóhann svaraði: „Tölvan bilaði og ég þurfti að hugsa sjálfur.“




Gunnar sá son nágrannans vera að moka í holu um daginn og spurði drenginn í hvers konar framkvæmdum hann stæði í.
Drengurinn svaraði með ekka: „Ég er að jarða hamsturinn minn.“ Gunnar er raunsær maður og spurði því: „Er þetta ekki nokkuð stór gröf fyrir einn hamstur?“
Um leið og drengurinn mokaði síðustu moldinni yfir svaraði hann: „Nei alls ekki, hamsturinn er innan í kettinum þínum.


Ungur maður sem réð sig sem leiðbeinanda í gagnfræðaskóla var orðinn ansi þreyttur á nemendum sínum eftir fyrstu vikuna. Í einum tímanum, þegar honum þótti börnin sína takmarkaða færni, sagði hann: „Mig langar að biðja alla þá sem eru heimskir að standa upp.“ Enginn stóð upp og eftir mínútu þögn sagði leiðbeinandinn: „Hvað er að ske, eruð þið öll vitringar?“ Þá stóð einn ungur piltur upp og kennarinn spurði: „Svo þú telur þig heimskan?“ Drengurinn svaraði: „Nei, ég bara vorkenndi þér að standa þarna einn.“




Forstjórafrú lenti í eldsvoða og brenndist. Andlit frúarinnar fór verst og þurfti að græða nýtt skinn á hana. Hún var ekki með nóg skinn sjálf í ígræðsluna svo bróðir hennar sem jafnframt er bílstjóri (sendisveinn) forstjórans, eiginmanns hennar, bauðst til að gefa skinn. Það gekk upp og var tekið skinn af rasskinn bróðursins og grætt á kinnar forstjórafrúarinna.
Þegar kinnarnar voru grónar kom forstjórafrúin til bróður síns og vildi launa honum greiðann en hann sagði, „þú ert sko margbúinn að launa mér. Mér er það sérstök ánægja að sjá manninn þinn kissa þig á kinnarnar. Ég þarf ekki meira.“




Viðskiptavinurinn: ”Hvaða gjöf get ég keypt handa gamalli, ríkri frænku sem er mjög veikburða og getur varla gengið?“
Afgreiðslumaðurinn: ”Hvað segirðu um bón?“


——————————————- ————————————-

Gary og Erika voru að klæða sig eftir einn snöggan í aftursætinu. ”Ég biðst afsökunar,“ sagði Gary. ”Ef ég hefði vitað að þú værir hrein mey þá hefði ég gefið mér meiri tíma.“ ”Það er ekki allt eins og það verður best á kosið,“ svaraði hún, ”ef ég hefði vitað að þú hefðir meiri tíma þá hefði ég farið úr nærbuxunum.“

————————————– ——————————————

”Heyrðu Benni, þú ættir að draga gardínurnar fyrir þegar þú og konan eruð að kela á kvöldin, ég sá til ykkar í gærkvöldi.“ ”Ha ha ha, ég var ekki einu sinni heima i gærkvöldi.“

————————————— —————————————–

Miðaldra kona kom inn í kvenfataverslun. Hún ætlaði að fá brjóstahaldara. Afgreiðslustúlkan spurði hvaða gerð það ætti að vera: ”hjálpræðisherinn“, ”einræðisherrann“ eða ”blaðamaðurinn“? En konan skildi ekkert og spurði hver munurinn væri á þessum gerðum. Jú, sagði afgreiðslustúlkan, ”hjálpræðisherinn“ lyftir þeim föllnu, ”einræðisherrann“ sankar að sér eins miklu og hann getur og ”blaðamaðurinn“ gerir úlfalda úr mýflugu.

——————————————- ————————————-

Hún var af þeirri tegund kvenna, sem geta komið mönnum til þess að kasta sér í ár, klöngrast upp á fjöll eða klifra upp í ljósastaura…Já…alveg rétt …kona með ökuskírteini.

————————————– ——————————————

El$ku pabbi: Vei$tu hver$ ég þarfnast me$t? Alveg rétt, þú vi$$ir það. $endu það $trax. Bið að heil$a.
Þinn el$kandi $onur $iggi.
Elsku Siggi. Ég get ekki NEItað því, að það var óNEItanlega skemmtilegt að fá seinasta bréfið þitt, alveg gNEIstandi af kímni. Ég vissi, að þú myndir ekki sNEIða hjá bröndurunum. Ég er vanur að ljúka bréfum með einhverjum hinna gömlu málshátta: NEYðin kennir naktri konu að spinna.
Þinn NEYðarlegi faðir.



—————————————– —————————————

Linkpowski kom inn á smíðaverkstæði. -”Gætuð þér smíðað handa mér kassa sem á að vera fimmtíu metra langur og tíu sentimetra þykkur og breiður?“ -”Til hvers í ósköpunum viltu fá svona kassa?“ spurði hann loksins. -”Sko nágranni minn var að flytja og hann gleymdi garðslöngunni sinni og nú vill hann að ég sendi honum hana.“

——————————————– ————————————

Majeski var standandi fyrir utan stórt hótel í Varsjá og hann var allsnakinn. Lögregluþjónn greip hann glóðvolgan. -”Jæja gæskur“ sagði löggan. ”Best að vefja einhverju utan um þig og svo förum við á stöðina.“ -”Bíddu aðeins“ æpti Majeski. -”Já en þú getur ekki staðið hérna allsnakinn!“ -”Já en ég er að bíða eftir kærustunni minni“ sagði Majeski með tárin í augunum. ”Áðan vorum við heima hjá mér uppi í sófa og þá fór hún að stynja svo undarlega og sagði að við skyldum drífa okkur úr fötunum og gera eitthvað skemmtilegt. Mig langaði að fara í bæinn og sennilega hef ég verið á undan henni…“

—————————————– —————————————

”Pabbi. Af hverju ertu að skvetta bensíni yfir afa?“ -”Þegiðu strákur og réttu mér kveikjarann…“

———————————– ———————————————

Pabbin n: ”Siggi minn, þú varst að eignast litla systur í morgun. Storkurinn kom með hana.“ Siggi: ”Pabbi! Ég skil þig ekki. Það er fullt af ríðilegu kvenfólki hérna í bænum og mamma er ekki sú versta. En samt ertu alltaf uppá einhverjum fuglsfjanda…!“

———————————- ———————————————-

Maður einn keyrði eftir fáförnum vegi, þegar hann allt í einu sá nunnu standa við vegarbrúnina og veifa merkis um að hana vantaði far. Maðurinn stoppaði og bauð henni far með sér. ”Ertu að fara langt?“ spurði hann nunnuna. -”Að næstu krossgötum“, svaraði nunnan. -”Þá verð ég að fá það hjá þér“, sagði maðurinn, frekar í gamni en alvöru. En honum til mikillar undrunar tók nunnan vel í þetta og sagði að hann myndi fá sitt er þau kæmu að næstu krössgötunum. En hann yrði að taka sig aftan frá. Þetta samþykkti hann og keyrði áfram þar til að krossgötunum kom. Þar fóru þau bæði út úr bílnum. Nunnan fletti upp um sig pilsinu og beygði sig fram með afturendann að manninum, sem var ekki lengi að gera þarfir sínar. Að þessu loknu sagðist hann gjarnan vilja hitta hana aftur og spurði hvað hún héti. -”Ég heiti Jón Jónsson, og er að fara á grímuball,“ var svarað…

—————————————— ————————————–

Feimin smeygði hin unga brúður sér undir sængina. -”Pétur?“ -”Já vina mín“. -”Hvað margar stúlkur hafa legið í rúminu hjá þér á undan mér?“ Löng þögn. -”Pétur?“ -”Já vinan.“ -”Ég bíð eftir svari frá þér.“ -”Já þú verður að bíða, ég er enn að telja…“!

—————————————- —————————————-

Jón gamli hafði ætíð verið afskaplega latur maður. Um daginn lét hann t.d. prenta fyrir sig bænirnar sínar og hengdi þær upp á vegg í svefnherberginu sínu. Þegar hann háttar bendir hann alltaf á bænirnar og segir: ”Drottinn, þú lest þetta bara…“

—————————————— ————————————–

Alveg er þetta merkilegt sagði unga ljóskan er hún kom úr þungunarprófinu og ég sem hef aldrei sofið hjá stork.

——————————————— ———————————–

Skrýtið læknir, kvartaði pía: -”Alltaf þegar ég sé myndarlegan karlmann fer mig að klæja milli tánna.“ -”Furðulegt,“ svaraði læknirinn. -”Hvaða táa?“ -”Stóru tánna“.

——————————————- ————————————-

Ást í Hollywood: 1.þáttur: -Augu þeirra mætast. 2.þáttur: -Varir þeirra mætast. 3.þáttur: -Lögfræðingar þeirra mætast.

——————————————– ————————————

-Gerir þú þér grein fyrir að hundurinn yðar beit mig. -Hundurinn minn, skrýtið, hann hefur ofnæmi fyrir svínum.

——————————————– ————————————

Skotinn var að enda bréf til vinar síns: Ég ætlaði að senda þér 10 pundin sem ég skulda þér en ég fattaði það ekki fyrr en ég var búin að loka umslaginu.

—————————————– —————————————

-”Veistu hvað það er sem hefur 167 tennur og heldur aftur af hrikalegu skrímsli?“ -”Ég gefst upp!“ -”Rennilásinn á buxunum mínum!“

——————————————- ————————————-

Frú Guðríður labbaði inn í bakarí. Þegar eigandinn lét ekki sjá sig, labbaði hún bakvið og kom að honum þar sem hann var að skreyta smákökur, og notaði til þess fölsku tennurnar úr sér. Frúin horfði sjokkeruð á hann og stundi síðan upp: -”Ég hélt að þú notaðir sérstakt áhald til þessara hluta.“ -”Nei“, svaraði bakarinn. ”Ég nota hann þegar ég bý til kleinuhringina!"

———————————- ———————————————-

Stolt ur faðir var að kynna son sinn fyrir vinnufélögum sínum. Og hvað ertu svo gamall vinur spurði einn vinnufélaganna. Þegar ég er heima þá er ég 7 ára en þegar ég fer í strætó þá er ég fimm ára.

———————————————– ———————————

Hvernig á að heilla konu: Hrósaðu henni, faðmaðu hana, kysstu hana, haltu utan um hana, elskaðu hana, strjúktu henni, stríddu henni, huggaðu hana, verndaðu hana, eyddu peningum í hana, bjóddu henni út að borða, kauptu gjafir handa henni, hlustaðu á hana, stattu við hlið hennar, styddu hana, farðu hvert sem er fyrir hana…
Hvernig á að heilla mann: Mættu nakin… með bjór.






Eiginkonan: Nágranni okkar kyssir konuna sína á hverjum degi áður en hann fer í vinnuna. Það væri gaman ef þú gerðir það líka.
Eiginmaðurirnn: Já, en ástin mín, ég þekki konuna hans ekki neitt !

Hún: Hvort myndir þú velja, fallega eða gáfaða konu ?
Hann: Hvorugt, elskan. Þú veist ég elska bara þig !

Vinkonur tala saman:
-Við Óli vorum hamingjusöm í 20 ár.
-Hvað gerðist svo ?
-Við hittum hvort annað.

Hvaða gangur er verstur ?
Niðurgangur ?

Með hverju borða gráðugir kínverjar ?
Prjónavél

-Það gerðist einu sinni rétt fyrir jól að heiðarlegur stjórnmálamaður, göfuglyndur lögfræðingur og jólasveinn voru saman í lyftu. Rétt áður en lyftan opnaðisttóku þeir eftir að 500 króna seðill lá á gólfinu.
-Hver haldiði að hafi tekið hann upp ?
-Auðvitað jólasveinninn, því hinir tveir eru ekki til !