Coca-Cola Þetta er alveg satt, en mér fannst þetta samt passa best inná brandar-áhugamálinu.

Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með10 lítra af kóki í bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
Til að hreinsa klósettið:
Helltu einni dós af kók ofan í klósettið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.

Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum:
Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.

Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum:
Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.

Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu): Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.

Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega.
Kókið leysir upp fitublettina.

Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.

Virka efnið í kók er phosphoric acid. Ph í kók er 2.8.
Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.

Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti
sem einungis eru notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.

Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Langar þér enn í hressandi dós af Coca-Cola?
“Against boredom, the gods themselves struggle in vain.” — Nietzsche