Fyrsta framhjáhald

Það voru miðaldrahjón sem áttu tvær ótrúlega fallegar dætur á táningsaldri. Þau ákváðu að reyna síðasta sinn við að fá soninn sem þau höfðu alltaf langað í.

Eftir að hafa reynt í marga mánuði, varð konan ófrísk og níu mánuðum síðar fæddi hún hraustann strák. Ofsakáti faðirinn dreif sig inn í fæðingarherbergið til að sjá nýja soninn sinn. Hann leit á son sinn og varð dauðskelkaður á að sjá eitthvert ljótasta barn sem hann hafði nokkurn tímann séð.

Hann fór til konu sinnar og sagði að það væri ekki möguleiki á að hann væri faðir þessa barns, “Líttu á dætur mínar tvær sem ég átti með þér”. Hann gaf konu sinni illt auga og spurði, “Hefur þú verið að halda fram hjá mér?”

Konan brosti bara ljúft og sagði… “Ekki í þetta skipti.”

———

Annað framhjáhald

Krufningalæknir var að vinna frameftir eitt kvöldið. Það var hans starf að rannsaka lík áður en þau yrðu grafin eða brennd. Þegar hann var að skoða líkið af Sigðurði nokkrum sem átti að fara brenna, sá hann nokkurt stærsta typpi sem hann hafði nokkurn tíma séð!

“Mér þykir það leitt Sigurður” sagði krufningalæknirinn, “en ég get ekki látið brenna þig með þetta ótrúlega stóra tól. Það verður að vera geymt á reðursafninu.” Og því næst fór krufningarlæknirinn í það að skera af typpið á Sigurði heitnum.

Krufningalæknirinn setti typpið í töskuna sína og fór með það heim. Hann ákvað að sýna konu sinni það fyrstri. “Ég er með svolítið sem þú munt ekki trúa” sagði hann og opnaði
töskuna sína.

“Guð minn góður!” öskraði hún… “Sigurður er dáinn!”

———

Þriðja framhjáhald

Maður einn fer inn á bar eitt kvöldið. Hann labbar upp að barnum
og biður um bjór.

“Sjálfsagt, það kostar eina krónu”

“Eina krónu!” sagði maðurinn hissa.

“Já” svaraði barþjónninn.

Svo að maðurinn sér matseðilinn og spyr, “Get ég fengið stóra safaríka nautasteik og öllu meðlæti?”

“Sjálfsagt” svarar barþjónninn, “en það kostar pening”

“Hversu mikinn pening?” spyr maðurinn.

“fjórar krónur” svarar barþjónninn

“FJÓRAR krónur!” spyr maðurinn, “hvar er eigandinn?”

“Uppi með konunni minni”, svarar barþjónninn.

“Hvað er hann að gera upp með konunni þinni?” spyr maðurinn

“Sama og ég er að gera við viðskiptin hans” segir barþjónninn

———

Nokkrir menn voru saman komnir til að spila póker. Meðal þeirra var maður
> að nafni Guðmundur. Þegar líða tekur á kvöldið fara þeir að tala um syni
> sína og eru flestir þeirra afar stoltir af sonum sínum. Þegar Guðmundur
> þarf að skreppa á klósettið byrja félagar hans að pískra:
> Aumingja Guðmundur, segir Halli. Sonur hans er hárgreiðslumaður og hommi.
> Engin framtíð í því. Sonur minn er
er efnilegur á fjármálamarkaðnum. Hann er
> ekki nema 29 ára og þegar hann fór í afmæli til vinar síns um daginn gaf
> hann honum glænýjan BMW.
> Þá segir Siggi: Það er nú ekkert, sonur minn er orðinn mjög viðamikill á
> fasteignamarkaðnum, aðeins 27 ára, og þegar hann fór í afmæli hjá félaga
> sínum um daginn gaf hann honum nýja íbúð í Skerjafirðinum.
> Í þessu kemur Guðmundur af klósettinu:
missti ég af einhverju ?
> Nei, segja pókerfélagarnir. Við héldum áfram að tala um strákana okkar.
Já,
> segir Guðmundur. Ég verð nú að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum
þegar
> strákurinn minn kom út úr skápnum, en hann plumar sig vel. Hann er með tvo
í
> takinu núna. Annar gaf honum glænýjan BMV og hinn gaf honum íbúð í
> Skerjafirðinum.