Okei ég ætla að senda hér inn nokkrar athugasemdir sem ég hef um fólkið og áhugamálið sjálft:

1.
ÉG VAR FYRSTUR

Nei nei nei og aftur nei, í guðanna bænum hættiði þessu. Þetta er ekki fyndið, tilgangsmikið eða neitt sem aflar ykkur athygli. Þetta er bara tilgangslaust svar sem kemur greininnni ekkert við.

2.
Feminismi og karlremba

Okei, kvenfólkið póstar inn fullt af brandörum um heimsku karlmanna og öfugt. Fyrst að bæði kynin eru að skjóta á hvort annað, jafnast þetta þá ekki allt saman út? Ekki koma með comment eins og : Hey éttu skít feminista hóra. Eða : KARLREMBUVIÐURSTYGGÐ. Segiði bara :Slappur brandari.

3.
Væl um copy/paste

Vá, ef þetta er fyndið þá á þetta heima hérna. Búið mál.

Jæja nenni ekki að halda áfram, bara varð að koma þessu að.