Það voru þrír menn úr í skó að veiða. Þegar þeir voru búnir að veiða í dá góða sdund áhveða þeir að fá sér að borða. Það stendur í öðrum þeira og hann byrjar að kafna.Þeir eru ekki með neinn síma. Þá taka þeir til sina ráða og snúa manninum við og girða buxurnar niður um hann, taka rör seta í rassin á honum og byrja að blása. Þegar annar þeira er búin að blása í dágóðan tíma áhveða þeira að skifta. Hinn tekur við en fyrst tekur hann rörið og snír því við.
þá seigir hinn “hvað ertu að gera maður”
Hinn “snú rörinu við heldurðu virkilega að ég vilji slefið úr þér”






Jónas sat í makindum heima hjá sér þegar konan hans tók hann allt
í einu tali:

“Jónas minn,” sagði hún, “ef ég dæi allt í einu, heldurðu að þú
mundir gifta þig aftur?”
“Ja, ég veit ekki,” sagði Jónas. “Ég er nú hvorki svo gamall
eða svo ljótur að ég gæti ekki hugsað mér að kvænast aftur, svo -
jú, ég mundi ekki telja það alveg óhugsandi.”
“En Jónas,” spurði hún aftur, “mundir þú koma með hana hérna í
fallega húsið okkar?”
“Tjahh,” sagði Jónas, “ég er nú búinn að streða fyrir þessu húsi,
lánin eru nokkurn vegin búin og húsið er í góðu ástandi, svo ég sé
enga ástæðu til að nota það ekki.”
“Jónas minn,” hélt hún áfram, “mundir þú láta hana hafa pelsinn minn
og flottu kjólana mína?”
“Ég geri ráð fyrir því,” sagði Jónas, “þetta eru allt nokkuð góðir
hlutir, svo það væri heimskulegt að henda þessu öllu á haugana þó þú
værir öll.”
“En Jónas, mundir þú láta hana hafa handsmíðuðu golfkylfurnar mínar?”
“Nei, hún er örvhennt.”








LEIÐBEININGAR FYRIR KARLMENN:
1. Aktu að hraðbankanum.

2. Skrúfaðu niður hliðarrúðuna.

3. Settu kortið í hraðbankann og sláðu inn leyninúmerið þitt.

4. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt taka út.

5. Taktu kortið, peningana og kvittunina.

6. Skrúfaðu upp rúðuna.

7. Aktu í burtu.

LEIÐBEININGAR FYRIR KONUR:

1. Aktu að hraðbankanum.

2. Bakkaðu bílnum svo að hliðarrúðan sé við hraðbankann.

3. Settu bílinn í gang aftur.

4. Skrúfaðu niður hliðarrúðuna.

5. Finndu nú veskið þitt og tæmdu úr því innihaldið í farþegasætið og finndu kortið þitt.

6. Finndu nú snyrtidótið þitt og athugaðu hvort að andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.

7. Reyndu að setja kortið þitt í hraðbankann.

8. Opnaðu bílhurðina svo að þú náir betur.

9. Settu kortið í hraðbankann.

10. Snúðu kortinu rétt.

11. Leitaðu nú að dagatalinu þínu í veskinu hjá þér, og lestu leyninúmerið sem þú skrifaðir innan á kápuna á dagatalinu.

12. Sláðu inn leyninúmerið.

13. Ýttu á “LEIÐRÉTTA” og sláðu inn rétt leyninúmer.

14. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt taka út.

15. Athugaðu nú aftur hvort andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.

16. Taktu peningana og minnismiðann.

17. Tæmdu aftur úr veskinu þínu og finndu seðlaveskið þitt, settu peningana í það.

18. Settu minnismiðann í tékkaheftið.

19. Athugaðu andlitið aftur.

20. Keyrðu tvo metra áfram.

21. Bakkaðu aftur að hraðbankanum.

22. Taktu kortið þitt.

23. Tæmdu veskið þitt og finndu hulstrið af kortinu og settu kortið þar.

24. Athugaðu andlitið.

25. Settu bílinn nú í gang aftur ! Aktu frá hraðbankanum.

26. Keyrðu nokkra kílómetra.

27. TAKTU BÍLINN ÚR HANDBREMSU !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!