OK þetta eru kannski sumir soldið gamlir brnadarar en haldið ´því þá bara fyrir ykkur nenni ekki að fá einhverja gagnrýni hérna






Mirror, Mirror On The Wall
Legend has it that there is a bar in New York
where in the Ladies Room, there is a very special
mirror. If you stand in front of the mirror and
tell the truth, you are granted a wish. However,
if you tell a lie, *POOF* you are instantly
swallowed up by the mirror, never to be seen again.

A redhead of questionable looks walked into the
Ladies Room and stood before the mirror and said,
“I think I'm the most beautiful woman in the world.”
*POOF* The mirror swallowed her.

Next, a rather large brunette stood before the
mirror and said, “I think I'm the sexiest woman
alive! *POOF* The mirror swallowed her.

Then an absolutely gorgeous blond came in and
stood before the mirror and said, ”I think…“
*POOF*




The Blonde and the Farmer
There was a blonde that was so sick of
blonde jokes she dyed her hair red. The jokes
stopped and she felt so good, she took a ride
in the country one Saturday afternoon. While on
this ride, she noticed a flock of sheep and stopped
the car to take in their beauty.

She noticed the farmer just standing there
watching, too. She walked up to him and asked
some questions on raising sheep. She then asked,
”If I can guess how many sheep are in your flock,
can I have one?“ The farmer agreed. She guessed 387.
The farmer said that was correct. ”So, go take your
pick on which one you want.“

She went into the flock and then to her car. The
farmer stopped her and asked, ”If I can guess what
your natural hair color is, can I have my DOG back?“





Tveir piltar sem eru að taka stúdentspróf ákváðu að nota upplestrarfríið til að skemmta sér ærlega og var mikið um glaum og gaman á hverjum degi í upplestrarfríinu. Nóttina fyrir fyrsta prófið sem var sögupróf nýttu þeir til fullnustu og þegar kom að því að mæta í prófið höfðu þeir ekki sofið í meira en sólarhring. Þeir fóru þó í skólann, ræddu við kennarann og sögðu honum að það hefði sprungið á bílnum uppi við Þingvallavatn kvöldið áður og þeir hefðu verið alla nóttina að ná í varadekk. Þeir fengu sólarhringsfrest til að hvíla sig. Þegar þeir mættu í prófið var farið með þá í sitthvora skólastofuna, gsm síminn tekinn af þeim og þeir látnir vera einir. Á fyrstu síðu var ein spurning sem var svona: „Hvaða ár nam Ingólfur Arnarson land (5%)?“ Þeir urðu dauðfegnir að sjá að prófið væri svona létt, svöruðu strax og flettu svo á aðra síðu. Þar var spurt: „Hvaða dekk sprakk á bílnum (95%)?“





Jónas vinur okkar, væskillinn sem hann er, ákvað að reyna að finna sér starf þar sem hann þyrfti ekki að lenda í útistöðum við fólk, því útistöður er það versta sem 50 kílóa rindill veit. Að lokum fann hann sér starf sem strætóbílstjóri, því hann var viss um að strætóbílstjórar þyrftu aldrei að stæla við farþegana.

Allt gekk að óskum í dáldinn tíma og Jónas var hamingjusamur í nýja starfinu. Þá gerðist það einn daginn þegar hann stoppaði við stoppistöð í Norðurbænum að inn kom svakalegur risi, yfir tveir metrar á hæð, með axlir upp á Akranes og handleggi og læri sem ekkert málband náði utanum. Hann ruddist inn í vagninn, starði á Jónas, greyið, og baulaði: JÓN TRÖLL BORGAR EKKI!! Síðan strunsaði hann framhjá Jónasi og settist aftast í vagninn.

Jónas var frekar svektur yfir þessari niðurlægingu, en hvað gat hann gert? Jón þessi gnæfði yfir hann eins og Öræfajökull yfir nærliggjandi sveitir og hann hefði líkast til brotið hann í tvennt ef hann hefði æmt eða skræmt.

Daginn eftir kom sami náunginn inn á sömu stoppistöð og tók aftur fram með beljandi rödd: JÓN TRÖLL BORGAR EKKI!! Og síðan settist hann aftast. Jónas skammaðist sín mikið, en aðhafðist ekkert. Nú ákvað hann, hins vegar, að tími væri kominn til að gera eitthvað róttækt.

Þegar Jónas kom heim til sín hringdi hann í forstjóra strætisvagnanna og fékk hjá honum þriggja mánaða frí. Síðan hringdi hann í heilsuræktina og pantaði þriggja mánaða massaprógram.

Nú tóku við erfiðir þrír mánuðir undir stjórn hörðustu þjálfara á staðnum. Jónas byggði sig upp, tróð í sig fæðubótarefnum og vöðvastyrkjandi vítamínum daginn út og daginn inn, þjálfaði vöðvana frá toppi ofan í tá, lærði Karate, Júdó og hnefaleika – varð, í einu orði sagt, Jón-tröll-étandi ruðningsmaskína.

Fyrsta daginn aftur í vinnunni kom Jón tröll upp í vagninn og viðhafði sín venjulegu ummæli: JÓN TRÖLL BORGAR EKKI!!

En í þetta sinn stökk okkar maður upp, tók í hálsmálið á Jóni Trölli og öskraði á móti: AF HVERJU Í ANDSKOTANUM EKKI???!!!

Jón tröll setti upp furðusvip og svaraði: Jón Tröll er með strætókort.





Kona segir við manninn sinn að hún vilji
fara í brjóstastækkun. Maðurinn hennar segir þá,
”ég veit hvernig þú getur stækkað á þér brjóstin
ókeypis og án þess að þurfa skurðaðgerð.“
Konan spyr þá, ”hvernig fer ég að því?“
”Nuddaðu bara klósettpappír milli brjóstanna
á þér,“ svaraði maðurinn.
Hissa á svipinn spyr konan, ”hvernig stækkar
það á mér brjóstin?“
”ég veit það ekki,“ svarar kallinn,
”það virkaði alla vega á rassinn á þér.“






Jón var á síðasta degi á hóteli úti á landi,
alltí einu þurfti hann nauðsynlega að skíta.
Klósettið í herberginu hans hafði brotnað í
smá teiti sem hann hafði haldið kvöldið áður
þannig að hann hljóp niður í andyri til
að nota klósettið þar, en nú voru góð ráð dýr,
klósettið þar var upptekið og hann fann að hann
hafði u.þ.b. 10-15 sekúndur þangað til að hann
einfaldlega skiti í buxurnar, þannig að hann
brá á það ráð að hlaupa upp í herbergi,
reif pottblóm sem að stóð við dyrnar upp úr
pottinum og skeit í pottinn.
Þegar að hann var búinn skellti hann blóminu
bara yfir allt saman, skráði sig út og dreif
sig í burtu.
Viku seinna fékk hann bréf frá hótelinu sem
að var svo hljóðandi:
”Kæri hr. Jón…. Við getum alveg gleymt öllu…
segðu okkur bara, hvar hann er?“






HVERNIG Á AÐ FARA Í STURTU EINS OG KONA
Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar ”óhreina-taus-körfur“ Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni. Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp. Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið. Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit. Stígðu inn
í sturtuna. Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina: andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en
ekki síst .. appelsínu-húðar-nudd-steinninn. Þvoðu hárið einu sinni með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið. Þvoðu hárið aftur með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið. Notaðu Agúrgku/Ginseng næringuna .. þessari með viðbættu Burkna-olíunni og láttu standa í hárinu í 15 mínútur. Þvoðu þér í framan með Aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur .. eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega. Þvoðu restina af líkamanum með Ginger/Jaffa-Cake líkams-sápunni.Skolaðu næringuna úr hárinu í sirka 15 mínútur .. svo að örugglega öll afgangs næring hreinsist í burtu. Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum. Skúfaðu fyrir sturtuna. Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni. Notaðu Ajax sturtu sprey til að ná upp háglans á flísarnar. Ekki gleyma að
athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa. Farðu úr sturtunni. Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríku ríki. Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt, handklæði. Skoðaðu allan líkamann í leit að minnsta blett eða hári. Notaðu neglur eða flísatöng til að gera útaf við það sem þú finnur. Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu. Myndu að hylja allt nakið hold .. ef að húsbóndinn er nálægt og flýttu þér í átt að svefnherberginu. Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig.

AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR
Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu, og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu. Ef að konan sér þig á leiðinni, hristu þá ”vininn“ í áttina að henni og segðu ”Vúúííí“. Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með ”sixpakk“ (sem þú ert ekki með.) Horfðu með aðdáun á stærðina á ”félaganum“, gríptu um hann og segðu ”Jú vonna pís of ðis beibí“. Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? ekki nota hann ef þú rekst á hann. Þvoðu þér í framan, undir höndum og ”vöðvann“. Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búði til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tihihihii). Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu). Skolaðu þig og farðu úr
sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til afþví að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn.) Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar
”pósur“ og horfðu með aðdáun á stærðina á ”jókernum“ (aftur). Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva
inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna, dragðu þá handklæðið frá, gríptu um ”gosann“, taktu eina Elvis-sveiflu og segðu ”Sssjabúmm". Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.