Jæja allir í ræktina. Í ÍÞRÓTTASALNUM
Um síðustu jól gaf konan mín mér vikukort í einkatímum í heilsuræktarstöð. Þó ég væri enn í frábæru formi frá því að ég var í skólaskákliðinu ! Þá ákvað ég nú að það væri ekkert svo slæm hugmynd að prófa þetta. Ég hringdi inn og staðfesti tíma með einhverri kallaðri Tanya, sem sagðist vera 26 ára eróbikkennari og
íþróttafata módel. Konan mín virtist mjög ánægð með það hve mikinn áhuga ég hafði á því að byrja.
Dagur eitt
Þau ráðlögðu mér að halda þessa “æfingar dagbók” til að skrá árangur minn þessa vikuna. Byrjaði morguninn klukkan 7:00. Erfitt að koma sér á fætur, en vel þess virði. Þegar ég mætti á heilsuræktarstöðina beið Tanya eftir mér. Hún er
nokkurs konar gyðja, með ljóst hár og töfrandi hvítt bros. Hún sýndi mér tækin og tók svo af mér púlsinn eftir fimm mínútur á göngubeltinu. Henni sýndist dálítið brugðið við því hversu hár hann var, en ég held að hafa staðið við hliðina á henni hafi bætt við tíu stigum. Naut þess að horfa á eróbiktímann. Tanya
var mjög hvetjandi þegar ég gerði magaæfingarnar, þó að mig hafi byrjað verkja fyrr á því að halda vömbinni inni allan tímann sem ég var að tala við hana. Þetta verður FRÁBÆRT.
Dagur tvö
Það tók mig tvo lítra af kaffi til þess að komast í gegnum útihurðina, en ég hafði það niður á stöð. Tanya lét mig leggjast á bakið og lyfta þessari þungu járnslá upp í loftið. Síðan setti hún lóð á hana, í Jesú nafni ! Fæturnir voru dálítið óstöðugir á göngubeltinu, en ég náði heilum kílómetra. Brosið
hennar gerði það þess virði. Mér líður FRÁBÆRLEGA í vöðvunum.
Dagur þrjú
Eina leiðin fyrir mig að bursta tennurnar er með því að leggja burstann á vaskinn og hreyfa munninn fram og aftur ofan á honum. Ég er viss um að ég hafi fengið tvöfalt kviðslit. Það var í lagi að keyra, svo lengi sem ég reyndi ekki að stýra. Lagði ofan á Bjöllu. Tanya var dálítið óþolinmóð við mig og sagði að öskrin í mér trufluðu hina meðlimina. Göngubeltið gaf mér brjóstverki, svo
ég reyndi Stiga Skrímslið. Því ætti einhver að vera að búa til vél sem hermir eftir aðgerð sem varð úrelt við uppfinningu lyftunnar? Tanya sagði mér að reglulegar æfingar myndu auka lífsmöguleika mína. Ég gæti ekki ímyndað mér nokkuð verra.
Dagur 4
Tanya beið eftir mér með, það glitti í vampýrutennurnar hennar. Ég get ekki að því gert að ég var klukkutíma of seinn. Það tók mig það langan tíma bara að reima skóna mína. Hún vildi að ég færi að lyfta lóðum. Ekki sjéns,Tanya. Ég faldi mig inní karlaklefanum þangað til hún sendi Láka á eftir mér. Sem refsingu setti hún mig á róðrarvélina, hún sökk.
Dagur 5
Ég hata Tönyu meir en nokkur manneskja hefur hatað aðra í allri
mannkynssögunni. Ef það væri einhver partur líkama míns sem ekki væri stórþjáður myndi ég kýla hana með honum. Hún hélt að það væri góð hugmynd að þjálfa upphandleggsvöðvana mína. Ég er með fréttaskot til þín Tanya, ég er ekki með neina helvítis
upphandleggsvöðva. Og ef þú villt ekki fá beyglur í gólfið skaltu ekki rétta mér neinar lyftistengur. Ég tek ekki ábyrgð á skaðanum sem gæti orðið. ÞÚ fórst í sadistaskóla, það er ÞÉR að kenna. Göngubeltið henti mér á einhvern vísindakennara, sem var helvíti vont. Af hverju gat það ekki verið einhver mýkri, eins og tónmenntakennari eða félagsvísindakennari?
Dagur 6
Fékk skilaboð Tönyu á símsvaranum mínum, vildi vita hvar ég væri. Mig skorti styrkinn til þess að nota fjarstýringuna svo ég horfði á Veðurrásina í ellefu tíma óslitið.
Dagur 7
Jæja, þá er vikan búin. Guði sé lof að hún er búin. Kannski gefur konan mín mér eitthvað örlítið skemmtilegra næst, eins og ókeypis tannborun hjá tannlækninum.