Lögfræðingur og ljóska sitja hlið við hlið í flugvél milli Los Angeles og New York. Lögfræðingurinn stingur upp á að þai bregði á leik á leiðinni. Ljóskan er þreytt og vill frekar sofa. En lögfræðingurinn er þrjóskur og segir að leikurinn sé mjög léttur og skemmtilegur. Hann útskýrir : ,,Sko, ég spyr þig spurningar og ef þú veist ekki svarið þá borgar þú mér og svo öfuggt.“ Aftur afþakkar ljóskan og reynir að sofna. En lögfræðingurinn gefst ekki upp svo hann gerir henni tilboð:,,Allt í lagi, í hvert skipti sem þú veist ekki svarið borgar þú mér 500kr en alltaf þegar ég veit ekki svarið þá borga ég þér 50.000kr, hvernig líst þér á það?” Þetta hljómar áhugavert og ljóskan ákveður að taka þátt. Lögfræðingurinn spyr fyrst: ,,Hvað er langt á milli jarðarinnar og tunglsins?“ Ljóskan segir ekki orð en teygir sína
budduna sína og réttir honum 500kr. En nú á ljóskan að spyrja:,,Hvað fer upp á fjall með 3 fætur en kemur niður með 4?” Lögfræðingurinn horfir á hana alveg kjaftstopp. Hann tekur upp fartölvuna sína, tengir hana við flugsímann og fer að leita á netinu. Orðinn pirraður sendir hann tölvupóst á alla vinnufélaga sína og vini, en allt kemur fyrir ekki. Eftir klukkustund eða svo verður hann að játa sig sigraðann, pikkar í ljóskuna og réttir henni 50.000kr. Hún þakkar pent fyrir sig og fer aftur að sofa. Lögfræðingnum líkar þetta alls ekki vel og vekur hana afur og segir: ,,Jæja, hvað er svarið?" Ljóskan teygir sig í budduna sína og réttir honum 500kr….. Fattiðið hann ekki !!!