Konur sem keyra.

Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogann á stýrinu.

Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert sjálfsagðara.

Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna sem ég hélt á í vinstri hendinni.

Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og tvíburana tvo.

Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af mikilvægu símtali!

Hvað er að þessum #%&!$# kellingum?