Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem
einn fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn
þreytulegur og dapur. “Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm
tíðindi” sagði hann og horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna.
“Eina von ástvinar ykkar er

að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð hefur ekki ennþá verið
prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er jafnframt eina vonin í
þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni en
þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann”. Ættingjarnir sátu hljóðir

og meltu með sér þessar fréttir. Eftir dálítinn tíma spurði einn
þeirra. “Hvað kostar heili?” Læknirinn svaraði strax.
“Karlmannsheili kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað

og fimmtíu þúsund”. Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en
karlmennirnir forðuðust að horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu

ekki
á
sér setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki
hamið forvitni sína og spurði þeirrar spurningar sem öllum langaði
að spyrja að. “Af hverju er karlmannsheilinn svona mikið dýrari”?
Læknirinn brosti umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði
þetta fyrir öllum hópnum. “Þetta er bara þetta venjlega verð sem
sett er upp, við getum ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því
þeir eru notaðir”!!!