Tommi: Við fáum fult af jólablómum í ár!

Mamma: Af hverju segir þú það?

Tommi: Af því að í fyrra gróðursetti ég fullt af jólakúlum!

……………………………..

“ Sjáðu mamma!” kallaði Danni litli, “Það er hreindýr í bakgarðinum!” Mamma Danna leit út um gluggann og sagði, “Heyrðu mig nú Danni, þú veist fullkomlega að þetta er hundurinn hans herra Jósefs.” Nokkrum mínútum seinna kallaði Danni litli aftur upp, “Sjáðu mamma! Það er Jólasveininn!” Mamma Danna leit út um gluggan og svaraði nú ergilega, “Danni, þú VEIST að þetta er herra Jósef! Farðu nú inn í herbergið þitt og biddu til Guðs að fyrirgefa þér fyrir þessar lygar!” Leiður, fór Danni upp í herbergið sitt. Nokkrum mínútum seinna kom hann hlaupandi niður stigan og kallaði: “Sjáðu mamma! Það snjóar!” Mamma Danna var verulega pirruð núna “Daníel! Þú VEIST að það er ekki að snjóa! Það er miður Júlí! Farðu nú og biddu Guð að fyrirgefa þér lygarnar!” Þegar hún fylgdi syni sínum aftur upp, varð henni óvart litið út um gluggann - og það var satt! Það var í raun og veru snjókoma! “Ég trúi þessu ekki!” hrópaði hú upp yfir sig, “Það er í raun snjókoma í Júlí!” Þá svaraði sonur hennar: “Ég veit! Þegar ég var að biðja til Guðs vegna herra Jósefs og hundsins hanns, varð Guði litið á þá og hélt að það væru komin Jól!”

……………………………..

Lítill drengur kom heim úr sunnudagaskólanum með nýtt sjónarhorn á jólasögunni. Hann hafði lært að vitringarnir þrír frá Austurlöndum höfðu fært Jesúbarninu gjafir. Hann var svo spenntur að hann varð að deila sinni nýju vitneskju með foreldrum sínum: “Ég lærði í sunnudagaskólanum í dag allt um fyrstu jólin! Það var enginn jólasveinn þá, svo að þessi þrír horuðu á úlföldunum urðu að bera út allar gjafirnar! Og Rúdolf með rauða nefið sitt lýsandi var ekki heldur til svo að þeir urðu að hafa stórt ljós uppi í himninum svo að þeir gætu ratað.”