PABLO FRANCISCO !!! Hinn snarbilaði og óendanlega fyndni grínisti, Pablo Francisco, er á leiðinni til landsins eins og mörgum er þegar kunnugt um. Haldin verða tvö uppistönd í aðalsal Háskólabíós þann 5. september, fyrra kl. 20:00 og seinna klukkan 22:30. Húsið opnar 19:30 og kappinn stígur á svið hálftíma síðar. Ég hvet alla sem ekki vita hver þessi snillingur er, að kynna sér hann hið snarasta. Miðar eru seldir í Skífubúðunum á 3000 kr. og fer hver að verða síðastur að ná sér í miða. Athugið að 18 ára aldurstakmark er á uppistöndin. EKKI LÁTA ÞETTA FRAMHJÁ ÞÉR FARA !!!

Heimasíða Pablo: www.pablofrancisco.com

MÆTIÐ !!!