Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín
eina tælenska úr póstlistanum “Einn með Öllu”. Hann veit ekki
alveg hvernig hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í
póstlistann, en fyrir slysni ruglast hann á símanúmerum og fær
samband við tölvubúðina “Ein með Öllu”. '

Heyrum nú hvað þeim fór á milli.
Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)

RING RING

S: “Ein með öllu” góðan daginn,

J: Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og ég
er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á
hana. Ég held að hún sé tælensk…..

S: Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá
hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?

J: Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á sér
sem á stendur. Hí un Dæ.

S: Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?

J: Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í
allan dag en ekkert gengið.

S: Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?

J: Já, hún stendur hérna alveg “nettó ”fyrir framan mig og ég bara
veit ekkert hvað ég á að gera næst.

S: Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota
þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.

J: Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!

S: Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.

J: Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg
víðast hvar…

S: Hvernig týpa er þetta annars? 486?

J: Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt
sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita
hvað maður gerir svona seinna meir…

S: Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa
hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað
sem þú vilt.

J: Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan
við erum að kynnast?

S: Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að
þú fáir það sem þú vilt.

J: Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum
á músinni !

S: Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig
er annars minnið í henni?

J: Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær

S: Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?

J: Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég
búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !

S: Hvað er hann stór“”?

J: Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !

S: O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu
mér annað, hvernig drif er á henni?

J: Hvað meinar þú með drif??????

S: Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif…

J: Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum

S: Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur
bara floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.

J: Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti
verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !

S: Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði
geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún
krassi á þig! !

J: Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá
hugsun til enda.

S: Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.

J: Það hlýtur að vera ósköp sárt! ! ! ! !

S: Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?

J: Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að
kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað
nytsamlegt.

S: Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að
nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður
getur.

J: Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?

S: Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.

J: Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð?
Hún Hí un Dæ???

S: Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð.
Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur
bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu
uppí! ! !

J: Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..

S: Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu.
Margir skipta á svona tveggja ára fresti…

J: Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn
til þess að hjóla í hana….

S: Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á
staðinn og hjálpa þér!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!