Fékk þetta í e-maili
Þessi er ansi góður
Get ég sagt ykkur


Á eyðieyju einni fjarri allri mannabyggð (auðvitað) strandaði skip en á
skipinu var fólk samankomið af ólíkum þjóðernum. En það var ekki fyrr en
mánuði síðar sem greyið fólkið fannst og hafði þá ýmislegt á daga þeirra
drifið…

Strandaglóparnir voru:
2 ítalskir menn og ein ítölsk kona
2 franskir menn og ein frönsk kona
2 þýskir menn og ein þýsk kona
2 grískir menn og ein grísk kona
2 breskir menn og ein bresk kona
2 búlgarskir menn og ein búlgörsk kona
2 japanskir menn og ein japönsk kona
2 kínverskir menn og ein kínversk kona
2 bandarískir menn og ein bandarísk kona
2 írskir menn og ein írsk kona
2 íslenskir karlmenn og 1 íslensk kona

Mánuði síðar á þessari sömu eyju höfðu eftirfarandi atburðir átt sér stað: Annar Ítalinn drap hinn vegna ítölsku konunnar
Frönsku mennirnir og franska konan lifa í sátt og samlyndi

Þjóðverjarnir hafa komið sér upp mjög stífu vikulegu fyrirkomulagi um
að heimsækja þýsku konuna

Grikkirnir sofa hjá hverjum öðrum á meðan gríska konan þrífur og eldar
handa þeim

Bretarnir bíða enn eftir að einhver kynni þá fyrir ensku
konunni

Búlgararnir horðu lengi á sjóndeildarhringinn og svo á búlgörsku konuna
og stungu sér síðan til sunds
Japanirnir sendu símbréf til Tokýó og bíða enn leiðbeininga
Kínverjarnir hafa komið upp apóteki, vínbúð, veitingastað og þvottahúsi
og kínverska konan er barnshafandi af völdum “þeirra” því starfsmenn
vantar

Bandaríkjamennirnir eru á barmi taugaáfalls því bandaríska konan
kvartar í sífellu yfir líkamsvextinum sínum; yfir eðli konunnar; hvernig
hún er
fær um að gera hvaðeina sem þeir geta; nauðsyn þess að lifa fullnægjandi
lífi; jafnri skiptingu á heimilisverkum; hvernig sandurinn og pálmatréin
valda
því að hún virðist feitari; hvernig síðasti kærastinn virti skoðanir
hennar og kom betur fram við hana en þeir tveir; hve samband hennar við
móður sína verður betra með degi hverjum og að lokum hve skattarnir eru
lágir og að það skuli aldrei rigna

Írarnir tveir hafa skipt eyjunni í norður og suður og sett upp
landamæri. Þeir minnast ekki hvort til kynlífs hafi komið því það er
allt í móðu eftir fyrstu lítrana af kókosviskíinu. En þeir eru sáttir
því
Bretarnir eru ekki að njóta sín.

Íslendingarnir eru orðnir stórskuldugir við verslanir og veitingahús
Kínverjanna og á brugghús Íranna. Íslenska konan er búin að sofa hjá
ítölsku, frönsku og amerísku karlmönnunum á meðan íslensku karlmennirnir
eru búnir að reikna út að þeir væru fallegastir, sterkastir,gáfaðastir
og fjölmennastir miðað við höfðatölu.

Eruði að hlæja?:)
Elinerlonli skrifaði: